Hagkaup hefur gefið út að áfram verði þar grímuskylda í verslunum keðjunnar, þrátt fyrir að heilbrigðisráðherra hafi veitt þeim sem greinst hafa með Covid-19, undanþágu gagnvart grímuskyldu, gegn framvísun vottorðs. Í öllum verslunum Krónunnar verður einnig áframhaldandi grímuskylda, fyrir þá sem fæddir eru 2015 eða fyrr.
„Til að huga að öryggi viðskiptavina og starfsfólks verður áfram grímuskylda í verslunum Hagkaups til og með 2. desember, hvort sem einstaklingar hafa fengið Covid-19 eður ei.
❗️Grímuskylda í Hagkaup - engar undanþágur. Kæru viðskiptavinir Í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi...
Posted by Hagkaup on Monday, 16 November 2020