Ofnbakaður fiskur með Dala Kastala - Ketó

Ljósmynd/Gott í matinn

Mánudagsfiskurinn er mættur og veldur ekki vonbrigðum fremur en fyrri daginn. Hann er að þessu sinni ketó sem margir ættu að fagna.

Ofnbakaður fiskur með Dala Kastala - Ketó

Fyrir fjóra

  • 600 g hvítur fiskur (t.d. þorskur, ýsa eða blálanga) skorinn í bita
  • 250 g spergilkál, skorið í smáa knúpa
  • 2 1⁄2 dl rjómi frá Gott í matinn
  • 100 g hvítur eða blár Dala Kastali
  • 4 msk. möndluflögur
  • smjör
  • sjávarsalt og svartur pipar

Aðferð

  1. Stillið ofninn á 225°C.
  2. Raðið fiskbitunum í eldfast mót smurt með smjöri. Saltið og piprið.
  3. Sjóðið spergilkálið í eina mínútu og látið vatnið síðan renna vel af því. Setjið á milli fiskbitanna og hellið rjómanum yfir.
  4. Myljið ostinn yfir og sáldrið hnetunum ofan á. Bakið í 20 mínútur.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert