Ragnar Freyr Ingvarsson er mörgum sjálfsagt betur kunnur sem Læknirinn í eldhúsinu. Það sem byrjaði sem áhugamál er orðið að lífsstíl og gott betur.
Læknirinn er einn vinsælasti matreiðslumaður landsins og bækur hans og sjónvarpsþættir hafa notið mikilla vinsælda. Ragnar leggur mikið upp úr hráefninu og veitt fátt skemmtilegra en að nostra við matinn og er útkoman ávallt eftir því.
Grafin grágæsarbringa með cassis- og bláberjasultu, rjómaostsfroðu og ferskum bláberjum
Fyrir fjóra
- 1 grágæsarbringa
- handfylli ferskt rósmarín
- handfylli ferskt timían
- 1 msk. rósapipar
- 1 msk. grænn pipar
- 2 msk. þurrkað timían
- 50 g gróft sjávarsalt
- 50 g sykur
Aðferð:
- Öllum hráefnum er blandað saman og lagt ofan á plastfilmu.
- Grágæsarbringunni er komið fyrir í miðjunni og svo er plastinu vafið þétt utan um hana þannig að hráefnin dreifist jafnt yfir.
- Sett í ísskáp í 2-3 daga undir fargi.
- Snúið á degi hverjum.
Cassis- og bláberjasulta
- 4 msk. bláberjasulta
- 100 ml cassis-líkjör
Aðferð:
- Byrjið á því að setja sultuna í pott og bætið sólberjalíkjörnum saman við.
- Hrærið vandlega saman og sjóðið niður líkjörinn.
- Látið kólna.
Rjómaostsfroða
- ½ dós rjómaostur með lauk og graslauk
- 250 ml rjómi
Aðferð:
- Setjið rjómaostinn í skál og hrærið rjómanum vandlega saman við.
- Hellið blöndunni í rjómasprautu og hleypið gasi á sprautuna.
- Geymið í kæli.
- Gætið að því að hrista sprautuna vel áður en þið sprautið úr henni. Gott er að prófa áður.
Samsetning
- 4 súrdeigsbrauðsneiðar
- smjör
- hvítlauksrif
- grafin grágæs skorin í þunnar sneiðar
- handfylli af basilsprettum
- handfylli af bláberjum
- salt og pipar
Aðferð:
- Smyrjið brauðið með smjöri og steikið á pönnu.
- Skerið hvítlauksrifið í helminga og raspið ofan á heitt brauðið.
- Sneiðið grágæsarbringuna í þunnar sneiðar og leggið ofan á brauðið.
- Skerið bláberin í helminga.
- Raðið brauðinu á disk, sprautið rjómaostsfroðunni yfir.
- Dreifið cassis-bláberjasultunni á diskinn
- Skreytið með berjum og basilsprettum.
- Salt og pipar eftir smekk.
Uppskriftin kemur úr Hátíðarmatarblaðinu okkar sem unnið var í samstarfi við Hagkaup og hægt er að nálgast HÉR.