Safahreinsanir njóta mikilla vinsælda

Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er alltaf kölluð.
Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er alltaf kölluð. Eggert Jóhannesson

Svokallaðar safahreinsanir njóta mikilla vinsælda en þær hjálpa líkamanum að hreinsa sig og núllstilla. Að sögn Karenar Jónsóttur sem á og rekur Matbúr Kaju hefur ásóknin farið fram úr björtustu vonum nú í upphafi árs. 

„Ég hef venjulega boðið upp á svona hreinsanir tvisvar á ári en nú er ég að fjölga þeim verulega sem er virkilega ánægjulegt enda hafa flestir gott af því að hreinsa líkamann með þessum hætti,“ segir Kaja en hreinsunin stendur yfir í viku og fá þátttakendur daglegan skammt af samsettum söfum sem hugsaðir eru til að hreinsa og næra lík­amann eins vel og kost­ur er. Ein­göngu er notað líf­rænt hágæðahrá­efni en Kaja segir það mikilvægan hluta af hreinsuninni enda sé eitt af markmiðunum að ná sem bestri hreinsun. 

„Fólk finn­ur mik­inn mun,“ seg­ir Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dag­arn­ir eru erfiðir, sér­stak­lega þegar fólk er að fara í hreins­un í fyrsta sinn, en á þriðja til fimmta degi verður oft svo­kölluð upp­ljóm­un. Bólg­ur minnka og jafn­vel hverfa, skapið verður létt­ara og svo verður bara öll líðan svo ein­stök. Ég fer í safa­hreins­un tvisvar á ári; á vor­in og svo haust­in og það held­ur mér gang­andi,“ seg­ir Kaja um safa­hreins­un­ina en slík­ar hreins­an­ir hafa notið mik­illa vin­sælda og hafa sannað gildi sitt. „Í upp­hafi var ég ein að vesen­ast í þessu en í gegn­um árin hef ég fengið sam­ferðafólk sem hef­ur hrif­ist af safa­hreins­unni og í dag er þetta orðið að nám­skeiði sem haldið er tvisvar á ári. Safa­hreins­un­in er ekki megr­un­ar­kúr held­ur er horft á að hvíla líffær­in og gefa þeim tæki­færi á að hreinsa út og fara í smá nafla­skoðun og núllstilla sig. Núllstill­ing auðveld­ar að ná tök­um á breytt­um lífs­stíl og að gera dra­stísk­ar breyt­ing­ar á mataræði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert