Hér er á ferðinni einfalt og gott pastasalat sem er frábær kvöldmatur fyrir alla fjölskylduna en hentar einnig sem nesti í vinnuna, skólann eða í ferðalagið.
Mozzarellakúlur með basilíku eru frábærar í rétti eins og salöt, snittur, pasta- og ofnrétti og forrétti ýmiss konar.
Pastasalat með mozzarella og basilíku
4 skammtar
- 500 g pastaskrúfur
- 5 msk. grænt pestó
- 3 msk. jómfrúarólífuolía
- 1 tsk. gróft salt
- 250 g kirsuberjatómatar
- 2 öskjur mozzarellakúlur með basilíku
- 1 bréf hráskinka
- söxuð basilíka
Aðferð:
- Sjóðið pastaskrúfur samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Skolið pastað vel og kælið aðeins niður.
- Hrærið saman pestó, ólífuolíu og salti.
- Blandið varlega saman við pastaskrúfurnar með sleif.
- Skerið niður kirsuberjatómata.
- Blandið mozzarellakúlum með basilíku ásamt tómötum og hráskinku saman við pastað.
- Stráið að lokum ferskri basilíku yfir allt saman og njótið.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir