Dönsk hönnun undir frönskum áhrifum

Nýr stóll frá Normann Copenhagen sem kallast Allez.
Nýr stóll frá Normann Copenhagen sem kallast Allez. Mbl.is/Normann Copenhagen

Danski húsbúnaðarframleiðandinn Normann Copenhagen, kynnir til sögunnar nýjan stól sem vísar í franskt borgarlíf og bístrómenningu – sem hefur verið vinsæll lifnaðarháttur frá lok níunda áratugarins.

Stóllinn ber nafnið „Allez chair“, og er nútímaleg útgáfa af hefðbundnum kaffihúsastól. Allez er fáanlegur í fimm tímalausum litum, þar sem hver og einn endurspeglar áþreifanlega og fallega norræna náttúru. Sem gerir hönnuninni kleift að falla auðmjúklega inn í stærra samhengi sem og útisvæði, því stólinn má nota jafnt innan- sem utandyra.

Eitt af því sem er einkennandi fyrir stólinn, er að hann er fáanlegur í nokkrum afbrigðum og gerir þér kleift að setja saman hönnun sem hentar þínum persónulega stíl og þörfum. Til að auka á þægindin má til dæmis bæta við bólstraðri sessu, nú eða setja eikarfætur undir sem hentar vel í borðstofur.

Stóllinn kemur í aðskildum pörtum og er afhentur í flötum pakkningum sem minnkar plássið verulega í sendingum – fyrir utan kolefnissparnaðinn. Samsetningarferlið er einfalt og stólnum fylgir lítið verkfæri og bæklingur sem gerir þér kleift að setja stólinn saman á örfáum mínútum. Það er því auðvelt að framkalla bistró sjarma á svalirnar eða við eldhúsborðið með þessari flottu stólanýjung.

Stóllinn hentar bæði utan- sem innandyra.
Stóllinn hentar bæði utan- sem innandyra. Mbl.is/Normann Copenhagen
Mbl.is/Normann Copenhagen
Þú getur sett nákvæmlega þína útgáfu saman af stólnum hvað …
Þú getur sett nákvæmlega þína útgáfu saman af stólnum hvað varðar fætur, sessu og annað. Mbl.is/Normann Copenhagen
Mbl.is/Normann Copenhagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert