Fermingarkakan og fallegasta borðskrautið í ár

Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hér erum við með köku úr smiðju Berglindar Hreiðarsdóttur á Gotteri.is sem er í senn einstaklega bragðgóð og falleg. Kökur sem þessar henta vel á hvaða veisluborð sem er og með réttu skreytingunum líta þær út eins og Pinterest-kökur (sem er æðsta viðurkenning sem kaka getur hlotið).

Hér er líka búið að dekka borð og það var stílistinn og útstillingahönnuðurinn Elva Hrund sem ásamt Blómagallerí sá um það.

Súkkulaðikaka með rjómaostakremi

Botnar

Þessi uppskrift x 2 (hrært hvort í sínu lagi)

  • 240 g hveiti
  • 350 g sykur
  • 90 g bökunarkakó
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 250 ml súrmjólk
  • 150 ml matarolía
  • 4 egg
  • 250 ml heitt vatn
  • 1 tsk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Hrærið saman öllum þurrefnum í eina skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin og blandið súrmjólk, olíu, vanilludropum og vatni saman við.
  4. Hellið vökvanum varlega saman við þurrefnin, hrærið og skafið niður á milli (deigið er þunnt og það á að vera þannig).
  5. Takið til 4 x 15 cm form og 3 x 20 cm form, setjið bökunarpappír í botninn og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
  6. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna (fyrra deiginu í þessi fjögur 15 cm form og seinna deigi í þessi þrjú 20 cm form) og bakið í um 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
  7. Kælið botnana vel og skerið svo ofan af botnunum svo þeir verði alveg sléttir og kælið þá.

Krem

  • 500 g smjör við stofuhita
  • 300 g rjómaostur við stofuhita
  • 1.800 g flórsykur
  • 100 ml rjómi
  • 2 tsk. vanillusykur

Aðferð:

  1. Þeytið smjör og rjómaost saman í nokkrar mínútur, skafið niður á milli.
  2. Bætið flórsykri, rjóma og vanillusykri saman við í nokkrum skömmtum og skafið vel niður.
  3. Smyrjið um 1 cm þykku lagi af kremi á milli botnanna á hvorri köku og hjúpið að utan með þunnu lagi svo það sjáist í hliðarnar á botnunum. Það má þó vera meira krem á toppnum sjálfum. Athugið að minni kakan þarf að sitja á pappaspjaldi til þess að geta farið ofan á hina síðar.
  4. Skafið hliðarnar sléttar og ef krem ýtist upp á toppinn á köntunum eins og á þessari köku er náttúrulegt og skemmtilegt að leyfa því bara að standa þannig í stað þess að draga það inn á kökuna sjálfa og slétta úr því.
  5. Kælið hvora köku um sig vel, gott að setja þá minni í frystinn í um klukkustund áður en þið lyftið henni yfir á hina. Setjið stoðir í neðri kökuna og lyftið hinni ákveðið ofan á hana og skreytið að lokum með ferskum blómum eða því sem hugurinn girnist.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert