Girnilegur bruschettu-bakki frá Hildi Rut

Ofboðslega girnilegur forréttabakki í boði Hildar.
Ofboðslega girnilegur forréttabakki í boði Hildar. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Það er ákveðin stemning í því að borða bruschettur, fingramat sem öllum finnst góður. Hér er hugmynd að bakka frá Hildi Rut sem er vægast sagt girnilegur.

Girnilegur bruschettu-bakki frá Hildi Rut

  • 1-2 bruschettubrauð (ég keypti súrdeigs)
  • ½ dl ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif, rifin eða pressuð
  • 125 g hreinn fetaostur
  • 100 g rjómaostur (ég nota Philadelphia)
  • 2 msk. hunang
  • 1 msk. pistasíuhnetur (má sleppa eða nota annað)
  • ½ tsk. sesamfræ (má sleppa eða nota annað)
  • 200-250 g kokteiltómatar
  • 120-180 g ferskur mozzarella
  • 2 msk. fersk basilíka
  • 1 msk. ólífuolía
  • salt og pipar
  • hráskinka og salami eftir smekk
  • jarðarber
  • fíkjur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hræra saman fetaost, rjómaost og hunang með töfrasprota eða í matvinnsluvél þar til blandan verður mjúk. Setjið blönduna í litla skál og dreifið smátt söxuðum pistasíuhnetum og sesamfræjum (eða notið aðrar hnetur og fræ í staðinn).
  2. Skerið tómata, mozzarella og basilíku smátt. Blandið öllu vel saman í skál og hrærið saman við ólífuolíu, salti og pipar.
  3. Skerið jarðarber og fíkjur í bita.
  4. Blandið saman ½ dl ólífuolíu og hvítlauksrifi í skál.
  5. Skerið baguette í sneiðar. Dreifið sneiðunum á bökunarpappír eða bakka og penslið báðar hliðar með hvítlauksolíunni.
  6. Steikið brauðið á grillpönnu eða á grilli þar til það verður stökkt og gott.
  7. Raðið öllu fallega á bakka og njótið vel!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert