Útilegubakkinn sem þykir algjör snilld

Stórsniðugur bakki sem rúmar ekki bara nestið, heldur líka drykkina.
Stórsniðugur bakki sem rúmar ekki bara nestið, heldur líka drykkina. Mbl.is/waroomstor.top

Útilegugarpar þessa lands eru byrjaðir að rúlla af stað í leit að sól og ævintýrum sumarsins. Og við getum ekki annað en mælt með þessum stórsniðuga bakka til að hafa með í för.

Við rákumst á þennan viðarbakka sem virðist við fyrstu sýn ekkert frábrugðinn öðrum pikknikkbökkum sem hægt er að raða kræsingum á og bjóða gestum upp á. En það sem gerir þennan bakka sérstakan er að hann er með sérstökum raufum til að leggja vínglös frá sér. Því þarftu ekki að hafa áhyggjur af glasinu á meðan þú situr úti á túni, ert uppi í rúmi eða annars staðar þar sem undirstaðan er ójöfn. Og þessa sniðugu græju má nálgast HÉR og rúlla svo af stað inn í sumarið.

Mbl.is/waroomstor.top
Mbl.is/waroomstor.top
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert