Stórbrotinn pastaréttur með parmaskinku og mozzarella

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Þegar maður tekur sér lýsingarorð eins og „stórbrotinn“ í munn er eins gott að rétturinn standi undir væntingum og það gerir hann svo sannarlega. Það er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlum & smjöri sem á þessa uppskrift sem er algjört æði ...

Pasta – fyrir 4 –

  • 2 öskjur kokteiltómatar
  • 3 msk. ólífuolía
  • 3 hvítlauksrif
  • ½ tsk. chiliflögur
  • 2 tsk. salt
  • handfylli ferskar kryddjurtir (t.d. timían, rósmarín)
  • 500 g Fusilli-pasta
  • 100 g grænt pestó
  • 100 g spínat
  • salt og pipar
  • 180 g mozzarellakúlur
  • 80 g hráskinka
  • handfylli af basilíku

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 200°C. Setjið tómatana í eldfast mót ásamt ólífuolíu. Kremjið hvítlaukinn saman við og dreifið salti, chiliflögum og kryddjurtum yfir. Hrærið öllu létt saman og inn í ofn í 10-15 mín.
  2. Sjóðið pastað á sama tíma samkvæmt leiðbeiningum, þegar það er fullsoðið, sigtið þá vatnið frá og setjið pastað aftur í pottinn. Blandið pestó, spínati og helmingnum af mozzarellaostinum saman við pastað.
  3. Takið þá eldfasta mótið úr ofninum og blandið pastanu saman við tómatana í mótinu. Sáldrið salti og pipar saman við eftir smekk. Þá er restinni af mozzarellaostinum dreift yfir ásamt hráskinkunni, síðan er formið sett aftur inn í ofn í u.þ.b. 10 mín.
  4. Skerið basilikuna niður og dreifið yfir réttinn þegar hann kemur úr ofninum.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert