Geggjað nýtt skurðarbretti frá Stelton

Hversu mikil snilld! Bretti sem þolir heitt og kalt á …
Hversu mikil snilld! Bretti sem þolir heitt og kalt á sama tíma. Mbl.is/Stelton

Nýtt skurðarbretti var að koma á markað frá Stelton, og þetta er brettið sem við höfum beðið eftir.

Brettið kallast „Twin“ og er einföld tímalaus hönnun. Hér um ræðir bretti sem er samsett úr viði og innbyggðri plötu sem gerir brettið svo stórkostlegt – því þú getur borið fram osta, skinku og aðra smárétti sem og litla heita rétti. Platan í brettinu þolir hitann og því er brettið fullkomið til að bera fram heita ídýfu og raða meðlætinu í kring.

Brettið er framleitt úr sjálfbærum, olíubornum bambus sem verður fallegri með hverri notkun og tíma. Það er arkitektinn Maria Berntsen sem hannaði brettið og er fáanlegt í tveimur stærðum. 

Mbl.is/Stelton
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert