Fiskrétturinn sem einfaldar lífið

Fiskrétturinn sem einfaldar lífið.
Fiskrétturinn sem einfaldar lífið. Mbl.is/Helga Magga

Við elskum einfalda en bragðgóða rétti sem hitta alltaf í mark – og hér er einn af þeim. Fiskréttur í kókosmjólk og karríi og nóg af grænmeti. Þessi snilldaruppskrift kemur frá Helgu Möggu næringarráðgjafa.

Einfaldasti fiskrétturinn

  • Þorskur, 650 g
  • sæt kartafla, 450 g
  • kartöflur, 400 g
  • spergilkál, 250 g
  • hvítlaukur eftir smekk
  • 1 dós létt kókosmjólk, 400 ml
  • 100 g rifinn ostur
  • 1 tsk. karrí
  • 1 msk. grænmetiskraftur
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera grænmetið niður í bita og setja í eldfast mót. Kryddið með salti, pipar, karríi og grænmetiskrafti.
  2. Kókosmjólkinni er svo hellt yfir og þetta hitað við 200 gráður í 15-20 mínútur.
  3. Á meðan er fiskurinn skolaður og skorinn í hæfilega bita. Þegar grænmetið hefur eldast í 15-20 mínútur er fiskinum raðað ofan á grænmetið, fiskurinn kryddaður með salti og pipar eftir smekk og osturinn settur ofan á.
  4. Rétturinn er svo eldaður áfram við 200 gráður í 20 mínútur.  
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert