Nýtt súkkulaði frá Nóa-Síríusi

mbl.is/Getty Images

Nói-Síríus byrjar nýja árið á því að gleðja sælkera með því að setja á markað gómsæta nýjung, Síríus Pralín dökkt súkkulaði með kókosfyllingu. Bragðmikið 56% Barón-súkkulaðið blandast einstaklega vel við mjúka fyllinguna svo úr verður veisla fyrir alla þá sem kunna gott að meta. Og grænkerar gleðjast líka því nýja súkkulaðið er vegan.

„Við eigum von á að súkkulaðiunnendur muni taka þessari vöru fagnandi. Barón-súkkulaðið er hið fullkomna súkkulaði fyrir þroskaða bragðlauka og þegar það blandast kókosfyllingunni verður til einstök bragðupplifun sem við erum mjög stolt af því að bjóða upp á. Það skemmir svo ekki fyrir að bragðið minnir á suðlægar slóðir og veitir þannig kærkominn yl í mesta skammdeginu,“ segir Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa-Síríusar, og bætir við að það borgi sig að hafa hraðar hendur því um sé að ræða tímabundna vöru.

Eins og allt Síríus-súkkulaði er nýja Pralín-súkkulaðið vottað af Cocoa Horizons-samtökunum. Það þýðir að kakóhráefnin eru ræktuð á ábyrgan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi. Bændur fá aðstoð við að auka fjölbreytileika uppskerunnar og nýta land sitt betur sem stuðlar að jákvæðari umhverfisáhrifum og dregur meðal annars úr eyðingu regnskóga.

Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa Síríus.
Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa Síríus. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert