Húsráðið sem hentar vel á veturna

Þú færð öll bestu húsráðin hér á matarvefnum.
Þú færð öll bestu húsráðin hér á matarvefnum. mbl.is/

Hér er á ferðinni húsráð sem ætti að rata til allra sem eiga ekki þurrkara heima hjá sér og vita hversu langan tíma það tekur fyrir þvottinn að þorna inni á veturna.

Kona nokkur frá Glasgow deildi húsráðinu á TikTok, þar sem hún ergir sig á því að þvotturinn sé alltaf sérlega lengi að þorna yfir vetrartímann – en sé nú búin að finna lausn á þeim vanda. Hún einfaldlega stillir þvottagrindinni fyrir framan ofn á heimilinu og leggur því næst teygjulak yfir grindina sem og ofninn sjálfan. Þannig myndast gott flæði af hita undir lakinu og þurrkar þvottinn á grindinni mun hraðar en ella. Miðað við ummælin virðist fólk vera ansi hrifið af þessu nýja húsráði sem hefur fengið fleiri þúsund læk.

mbl.is/TikTok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert