Besta leiðin til að þrífa óhreinindi af höndum

.
. Mbl.is/koipoia.blogspot.com

Þegar við tölum um óhreinindi á höndum, þá vitnum við ekki einungis í almennan handþvott eftir t.d. salernisferðir. Hér um ræðir óhreinindi á við málningu eða annað slíkt sem situr oftast sem fastast á höndunum og virðist aldrei ætla af, þrátt fyrir mikla sápu og rennandi vatn.

Besta leiðin til að losna við óhreinindin án þess að skrúbba húðina alveg niður að beini, er að maka á sig ólífuolíu og nudda olíunni vel á hendurnar. Þannig sérðu óhreinindin renna mjúklega af, enda verður allt mun betra með olíunni góðu – bæði við handþvott sem og matargerð.

Ólífuolía er frábær til að ná málningu af höndunum.
Ólífuolía er frábær til að ná málningu af höndunum. mbl.is/TikTok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert