Snickers bolludagsbollur með hnetusmjörs-súkkulaði rjóma og karamelluglassúr

Ljósmynd/Linda Ben

Linda Ben galdrar hér fram bollur sem hún segir að séu skemmtilega öðruvísi og fullkomin fyrir þá sem elska snickers, hnetusmjör og karamellu.

Snickers bolludagsbollur með hnetusmjörs-súkkulaði rjóma og karamelluglassúr

Karamelluglassúr toppur

  • 100 g smjör
  • 60 g púðursykur
  • 60 ml mjólk
  • U.þ.b. 150 g flórsykur

Aðferð:

  1. Útbúið vatnsdeigsbollur eins og gefið er upp i uppskriftinni hér.

  2. Setjið 100 ml rjóma í pott ásamt hnetusmjöri og hitið mjög vel, en ekki láta sjóða. Brjótið súkkulaðið í skál og hellið hnetusmjörsrjómanum yfir súkkulaðið, hrærið þar til súkkulaðið hefur samlagast rjómanum.

  3. Útbúið karamelluglassúrinn með því að setja smjör, púðursykur og mjólk í pott og hita þar til blandan byrjar að sjóða, takið þá af hitanum og blandið flórsykri út í þar til áferðin verður þykk fljótandi.

  4. Setjið restina af rjómanum (400 ml) í skál og þeytið létt. Þegar rjóminn er aðeins byrjaður að þykkna, hellið þá hnetusmjörs-súkkulaðiblöndunni út í mjórri bunu á meðan verið er að þeyta. Þeytið þar til rjóminn er orðin stífur.

  5. Skerið bollurnar í helminga og fyllið með rjómanum, lokið bollunum, hellið karamelluglassúr yfir og dreifið nokkrum salthnetum yfir.

Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert