Splúnkunýtt munstur í vinsælustu mottu landsins

Vinsælasta motta landans er frá Pappelina.
Vinsælasta motta landans er frá Pappelina. mbl.is/Pappelina

Nú gleðjumst við! Því það er komið nýtt munstur í nýrri mottu frá Pappelina – okkar eftirlæti í eldhúsið.

Það þarf vart að kynna Pappelina, en við höfum áður rætt dálæti okkar á þeirri mottu hér á matarvefnum. Enda ekki annað hægt þar sem motturnar frá sænska framleiðandanum eru með þeim allra bestu í eldhúsið og víðar inn á heimilið ef því er að skipta. Pappelina plastmotturnar eru ofnar í Dölunum í Svíþjóð, þær eru praktískar, viðhaldslitlar og framleiddar úr sænsku PVC efni.

Nýja munstrið kallast Ilda og kemur í sex litum og fimm stærðum. Fyrir áhugasama þá má finna nýju mottuna versluninni Kokku HÉR.

mbl.is/Pappelina
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert