„Þessi súkkulaðimús er einföld og afar ljúffeng. Hún hentar fullkomlega sem eftirréttur en svo væri líka hægt að skipta henni niður í litlar krúsir/plastbox og bjóða upp á í veislu,“ segir veisludrottningin Berglind Hreiðarsdóttir um þessa snilldaruppskrift sem passar bæði sem eftirréttur og veisluréttur.
hlekkur
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Lindor súkkulaðimús
Uppskrift dugar í 8-10 glös eftir stærð
- 400 g rauðar Lindor kúlur (30 stk)
- 30 g smjör
- 3 egg
- 50 g flórsykur
- 1 l þeyttur rjómi (skipt til helminga)
- Lindor lítil egg og litlar kanínur til skrauts
- Fersk blóm til skrauts
- Bökunarkakó til skrauts
Aðferð:
- Bræðið saman Lindor kúlur og smjör yfir vatnsbaði, takið af hitanum og leyfið að kólna aðeins niður á meðan annað er undirbúið.
- Þeytið rjómann, skiptið í tvennt og geymið (500 og 500ml).
- Þeytið egg og flórsykur saman þar til blandan fer að freyða.
- Blandið þá súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna í nokkrum skömmtum og blandið varlega saman með sleikju.
- Takið þá aðra rjómaskálina og setjið um 1/3 af þeim hluta rjómans saman við súkkulaðiblönduna og vefjið saman með sleikju. Bætið þá restinni af þeim rjóma saman við og blandið áfram þar til slétt súkkulaðimús hefur myndast.
- Skiptið niður í skálar/glös og sprautið hinum helming rjómans í „doppur“ yfir súkkulaðimúsina.
- Skreytið með því að sigta smá bökunarkakó yfir og síðan með blómum og litlum Lindor súkkulaðieggjum og kanínum.
- Kælið í að minnsta kosti 2 klukkustundir (eða yfir nótt).
- Einnig er hægt að gera músina sjálfa og kæla hana þannig með plasti yfir í 1-2 daga, skreyta síðan stuttu áður en bera á hana fram. Hér væri þá einnig betra að bíða með að þeyta 500 ml af rjómanum og gera það samhliða skreytingunni.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir