Kaka fyrir þá sem eru í nammibindindi

Ljósmynd/Hanna

Matarbloggarinn og keramikerinn Hanna er hér með eina sjöllustu uppskrift sem sést hefur lengi. Hanna er sum sé í nammibindindi en má borða köku. Hún segir að þetta sé leiðin til að fá sér nammi í kökuformi. Kakan sé góð og einföld og smellpassi sem eftirréttur á sparidögum.

Einföld nammikaka

Botn

  • 115 g smjör
  • 130 g suðusúkkulaði
  • 3 egg
  • 2 dl sykur
  • 150 g þristar (skornir í bita – ekki of smátt)
  • 1½ dl hveiti
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. kakó

Ofan á

  • 6 – 8 kókosbollur
  • 3 dl rjómi
  • Skraut eins og t.d. kókosbollur eða fersk ber

Aðferð:

Botn

  1. Ofninn hitaður í 130°C – blástur
  2. Smjör og súkkulaði brætt saman yfir vatnsbaði á lágum hita
  3. Egg og sykur þeytt saman þar til hræran verður létt og ljós. Vanilludropar settir út í
  4. Sigta saman hveiti og kakó og blanda því út í eggjahræruna – hræra saman með sleikju
  5. Súkkulaði- og smjörblöndunni hellt saman við deigið ásamt þristabitunum – blanda varlega saman með sleikju
  6. Deigið sett í 20 cm smelluform með bökunarpappír í botninum – (best að hafa formið rúmlega hálft) og bakað í 32 – 37 mínútur. Flestir á heimilinu eru sammála um að kakan sé best þegar hún er svolítið blaut þ.e. ekki of mikið bökuð – baka hana yfirleitt í 32 mínútur
  7. Kakan látin kólna og tekin úr smelluforminu

Ofan á

  1. Rjómi þeyttur og kókosbollum blandað saman við hann – skellt ofan á. Flott að skreyta með nokkrum kókosbollum eða ferskum ávöxtum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert