Saltbaukurinn sem er ómissandi í eldhúsið

Saltbaukurinn frá Emile Henry, heldur saltinu þínu lengi og vel …
Saltbaukurinn frá Emile Henry, heldur saltinu þínu lengi og vel án þess að enda í klumpum. mbl.is/Emile Henry

Hvern hefði grunað að saltbaukur gæti haft áhrif á mann við eldhússtörfin – eflaust engan, fyrr en við prófuðum þennan hér.

Saltbaukur er ekki bara saltbaukur – og þar eru orð að sönnu. Saltbaukarnir frá Emile Henry eru ekki bara skemmtilegir ásjónu, því þeir eru handhægir og þægilegir þegar grípa á í dass af salti. Keramík baukarnir eru óglerjaðir að innan sem kemur í veg fyrir að t.d. sjávarsalt verði að einum hörðum klumpi. Þar fyrir utan eru baukarnir til í ótal litum sem setja stemninguna á borðið. Saltbaukarnir eru frábær gjöf handa sælkeravini og fást í versluninni Kokku. 

mbl.is/Emile Henry
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert