Gæddu sér á lúxusbita í Harrods

Ljósmynd/Instagram

Mæðgurnar Kylie Jenner og Stormy Scott eru staddar í London þar sem þær eru að njóta lífsins í bland við vinnu. Kylie er að kynna snyrtivörulínu sína sem er meðal annars til sölu í lúxusversluninni Harrods.

Jenner birtir reglulega myndir úr ferðinni á Instagram þar sem hún er með um 330 milljónir fylgjenda. Hér sjást þær mæðgur í Harrods þar sem þær gæddu sér á dýrindis veitingum sem bornar voru fram eftir kúnstarinnar reglum.

Smásamlokur sem að sjálfsögðu eru skorpulausar í bland við bakkelsi var á boðstólum og Jenner gæddi sér á kampavíni eins og konur sem eiga einkaþotur gera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert