Eldhúsgræjan sem auðveldar allt

mbl.is/Amazon

Við elskum að finna nýjar græjur á netinu sem létta okkur lífið í eldhúsinu – en þessi hér auðveldar allt.

Hér um ræðir afskaplega hagnýtan og nýstárlegan kjarnhreinsi og er ómissandi við eldhússtörfin. Græjan er að sjálfsögðu með þægilegu handfangi og hanka til að hengja upp og ef marka má umsagnir, og þá virkar hreinsirinn einnig hraðar en hnífur. Kjarnhreinsirinn er fullkomin viðbót við ‚verkfærasettið‘ þitt í eldhúsinu og er hið fullkomna tól til að hreinsa chili, kúrbít, gúrku, kartöflur, epli ofl. – því hann er hentugur fyrir hvaða harða grænmeti og ávexti sem er. Skrælarinn er úr ryðfríu stáli og þolir uppþvottavél – við biðjum ekki um meira. Fyrir áhugasama, þá má skoða nánar HÉR

mbl.is/Amazon
mbl.is/Amazon
mbl.is/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert