Uppskriftin sem þú átt eftir að elska

Ljósmynd/Linda Ben

Hér kemur enn ein snilldaruppskrftin frá Lindu Ben en hér er grænmetið í aðalhlutverki. Auðvelt er að bæta kjúling eða fiski við ef því er að skipta en það er gott að vera í grænmetinu endrum og eins og leyfa þannig kroppinum að blómstra.

Grænmetisréttur miðjarðarhafsins

  • 1 stórt eggaldin
  • 200 g kirsuberjatómatar
  • 1 rauð paprika
  • 1 rauðlaukur
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1 dl Jómfrúaar ólífu olía frá Muna
  • Salt og pipar
  • 400 g hakkaðir niðursoðnir tómatar
  • 200 g hýðishrísgrjón löng frá Muna
  • 1 msk. tómatpúrra frá Muna
  • 1 tsk. tahini frá Muna
  • 2 tsk. oreganó krydd
  • 1 tsk. rósmarín krydd
  • 1 tsk. basil krydd
  • 280 g steinlausar grænar ólífur Muna
  • 200 g mozzarella
  • Sítrónu olía frá Muna
  • Ferskt basil
  • Parmesan

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir.
  2. Sjóðið hrísgrjónin upp úr vatni þar til þau eru mjúk í gegn.
  3. Skerið eggaldinið, paprikuna, rauðlaukinn niður og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, raðið tómötunum einnig á pönnuna, rífið hvítlauk yfir, hellið olíunni yfir og dreifið einnig salti yfir. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 15 mín eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
  4. Setjið hrísgrjónin í eldfastmót ásamt niðursoðnu hökkuðu tómötunum, tómatmaukinu og tahini, blandið öllu vel saman. Kryddið með oreganó, rósmarín, basil, salti og pipar, blandið öllu vel saman. Dreifið grænum ólífum og mozzarella yfir og bakið í u.þ.b. 15 mín eða þar til mozzarella er byrjaður að bráðna.
  5. Berið fram með ferskri basilíku, sítrónu olíu og parmesan.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert