Kjúklingarétturinn sem toppar helgina

Ljósmynd/Valgerður Gréta

„Ég, eins og margir, er alveg sérlega mikil pítsukona. Fátt er betra en góð pítsa og á nokkrum pítsustöðum er hægt að fá pítsur með ríflegu magni af áleggi sem ganga undir nöfnum eins og Pavarotti eða Extra. Þessi samsetning er mjög amerísk og vinsæl þar en því ekki að prófa að blanda þessum hráefnum saman í djúsí kjúklingarétt. Útkoman er svona framúrskarandi góð og þessi blanda er ekkert síðri pöruð með kjúkling og ostasósu,“ segir Valgerður Gréta Gröndal, matarbloggari á GRGS um þessa uppskrift sem sameinar það sem flestir elska heitast; kjúkling og pepperóní pítsu.

Pizza kjúklingaréttur með pepperóní og ostasósu

  • 900 g kjúklingabringur eða lundir, kryddaðar með salti og pipar
  • 2 msk. olía
  • 1 stk. rauðlaukur
  • 5 stk. ferskir sveppir
  • 1⁄2 stk. græn paprika
  • 12 stk. pepperónísneiðar
  • • svartar ólífur í sneiðum, má sleppa
  • 200 g rifinn Pizzaostur frá Gott í matinn
  • • þurrkað óreganó
Rjómaostasósa
  • 1 stk. pepperóní kryddostur frá MS
  • 150 ml vatn
  • 1 msk. kjúklingakraftur
  • 3 msk. hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 1 msk. þurrkað óreganó
  • 1 tsk. þurrkuð basilíka
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • salt og pipar eftir smekk
  • 200 ml rjómi frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Kryddið kjúklinginn og skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar.
  2. Hitið olíu á pönnu og setjið laukinn út á.
  3. Steikið laukinn þar til hann fer að mýkjast, bætið kjúklingnum út á pönnuna og brúnið. Það þarf ekki að gegnumsteikja kjúklinginn á þessu stigi.
  4. Setjið kjúklinginn og laukinn í eldfast mót.
  5. Næst er það sósan góða.
  6. Skerið pepperóní ostinn í litla bita og setjið í pott.
  7. Hellið vatni, kryddum, rjómaosti, tómatpúrru og rjóma út í og hrærið vel saman.
  8. Þegar ostabitarnir hafa bráðnað og búið er að smakka sósuna til má hella henni yfir kjúklinginn.
  9. Setjið helminginn af sveppunum og paprikunni yfir sósuna og stráið rifna ostinum yfir.
  10. Raðið síðan pepperóní, restinni af sveppunum og paprikunni yfir ásamt ólífum ef vill.
  11. Bakið loks í 200°C heitum ofni í 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur.

Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert