Kósírétturinn sem tikkar í öll box hjá fjölskyldunni

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Hér er á ferðinni alvöru huggulegheitamatur sem tekur enga stund að græja. Bragðmikil tómatsósa, pasta og nóg af bræddum osti tikkar í öll boxin hjá ungum sem öldnum. Dásamlegur pastaréttur sem dugar fyrir 3-4.

Bakað tómatpasta með mozzarellakúlum

4 skammtar

  • 300 g þurrkað pasta að eigin vali
  • 1 stk. lítill laukur
  • 3 stk. hvítlauksrif, 2-3 stk.
  • 1⁄2 tsk. þurrkaðar chili flögur, má vera minna
  • 2 msk. smjör
  • 2 msk. tómatpaste
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 1 dl rjómi
  • salt og pipar
  • 2 dósir mozzarella kúlur (360 g)
  • fersk basilíka og rifinn Feykir

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakka og gerið sósuna á meðan pastað sýður.
  2. Saxið lauk og hvítlauk og steikið upp úr smjörinu ásamt smá chilliflögum, salti og pipar þar til mýkist.
  3. Setjið tómatpaste á pönnuna ásamt tómötum úr dós og rjóma hrærið þessu vel saman.
  4. Setjið dálítið vatn í tómatdósina ef ykkur finnst sósan þykk og hellið yfir.
  5. Leyfið að malla og smakkið til með salti og pipar.
  6. Ef þið eigið ferska basilíku er mjög gott að setja dálítið af henni út í líka en má sleppa.
  7. Hellið vatninu af soðnu pastanu en geymið smá pastasoð.
  8. Setjið pastað saman við sósuna á pönnunni og hrærið vel saman.
  9. Bætið dálitlu pastasoði samanvið ef ykkur finnst þurfa að þynna sósuna.
  10. Hitið grillið í ofninum á hæsta styrk og setjið réttinn í eldfast mót.
  11. Hellið mozzarella kúlunum á pappír og þerrið þær aðeins áður en þið rífið þær í tvennt og raðið ofan á pastaréttinn.
  12. Bakið við háan hita þar til osturinn er gullinbrúnn.
  13. Berið fram með rifnum Feyki og ferskri basilíku og njótið!

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert