Kósírétturinn sem hittir í mark

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Ég var að prófa gnocchi í fyrsta skipti og ætla ég alveg að segja að ég var smá skeptísk á þetta í upphafi þar sem þetta er aðeins önnur áferð en á venjulegu pasta,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem við köllum hinn fullkomna kósímat.

„Gnocchi er þéttara í sér og stífara undir tönn en almáttugur þessi baka var undursamleg og virkilega gaman að prófa að breyta aðeins út af vananum með hefðbundið pasta!“

Gnocchi-baka

Fyrir 4-6

  • 3 kjúklingabringur frá Rose Poultry
  • 300 g frosið rósakál
  • 200 g kastaníusveppir
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 pakki DeCecco-gnocchi (500 g)
  • 350 ml rjómi
  • 200 g Philadelpia-rjómaostur
  • 100 g rifinn Primadonna/Grettir ostur
  • ólífuolía til steikingar
  • sítrónusneiðar til skrauts
  • smjör til steikingar
  • salt, pipar, hvítlauksduft, kjúklingakrydd, cheyennepipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt, langsum svo úr verði sex einingar.
  3. Sjóðið rósakálið í átta mínútur og hellið í sigti, leyfið vatninu að leka vel af.
  4. Steikið kjúklinginn upp úr olíu til að loka bringunum og brúna allar hliðar. Kryddið eftir smekk, leggið í eldfast mót.
  5. Sneiðið sveppina, bætið smjöri á pönnuna og steikið þá við meðalháan hita og kryddið eftir smekk þar til þeir fara að mýkjast. Setjið þá hvítlaukinn saman við síðustu mínútuna og bætið sveppunum næst í fatið með kjúklingnum.
  6. Bætið aftur smjöri og olíu á pönnuna og steikið næst rósakálið, kryddið eftir smekk og bætið því síðan við í eldfasta mótið.
  7. Sjóðið þá gnocchi á eftir rósakálinu (í tvær mínútur), sigtið vatnið af og bætið næst í eldfasta mótið.
  8. Næst má gera sósuna með því að hella rjómanum á pönnuna, rífa ostinn og bæta rjómaostinum saman við. Hrærið við meðalháan hita þar til jöfn sósa myndast og kryddið eftir smekk.
  9. Hellið sósunni yfir allt í fatinu, blandið létt saman, skreytið með sítrónusneiðum og setjið í ofninn í 25 mínútur. Gott er að hafa álpappír yfir fyrstu 15 mínúturnar og taka hann síðan af í lokin.
  10. Rífið meiri Primadonnu/Gretti-ost yfir ef þess er óskað.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert