Pönnukökur sem bæta helgina

Pönnukökur með ferskum berjum að hætti Jamie Oliver.
Pönnukökur með ferskum berjum að hætti Jamie Oliver. mbl.is/Jamie Oliver

Pönnukökur í morgunmat um helgar ætti að vera skylda - ef við mættum setja reglurnar. Hér er uppskrift að pönnukökum sem bæta helgina - með grískri jógúrt og ferskum berjum.

Pönnukökur sem bæta helgina

  • Ósaltað smjör eða ólífuolía
  • 2 msk. grísk jógúrt
  • 60 gr. blönduð ber
  • Hlynsíróp
  • Malaður kanill

Deig

  • 250 gr. hveiti
  • 230 ml léttmjólk
  • 1 stórt egg

Aðferð:

  1. Deig: Setjið hveiti, mjólk og klípu af salti í stóra skál. Brjótið eggið út í og þeytið þar til deigið verður slétt. 
  2. Hitið stóra pönnu á miðlungshita. Settu smjörklípu á pönnuna og láttu það malla. Setjið þá fjórar stórar skeiðar á pönnuna. 
  3. Þegar litlar loftbólur byrja að myndast í deiginu, snúið þá deiginu við og látið bakið áfram á pönnunni í 1-2 mínútur. Setjið yfir á disk og toppið með grískri jógúrt, handfylli af berjum og skvettu af hlynsírópi og smávegis af kanil. 

Uppskrift: Jamie Oliver

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert