Rétturinn sem bjargar geðheilsunni í jólastressinu

Kartföflu-frittata að bestu gerð.
Kartföflu-frittata að bestu gerð. mbl.is/Jamie Oliver

Það er nauðsynlegt að geta gripið í uppskrift sem þessa hér - þegar stressið læðist upp bakið á okkur á aðventunni. Kartöflubaka að bestu gerð með brokkolí og cheddar osti - namm!

Þessi uppskrift kemur frá meistara Jamie Oliver og er algjör snilld eins og flest allt sem hann gerir.

Rétturinn sem bjargar geðheilsunni í jólastressinu

  • 600 g kartöflur
  • 1 búnt vorlaukur
  • 1 brokkolíhaus
  • 1 rauð paprika
  • 1 tsk. reykt paprikukrydd
  • 8 stór egg
  • 40 g cheddar ostur
  • 80 g spínat / salat

Annað

  • Ólífuolía
  • Sjavarsalt
  • Svartur pipar

Aðferð:

  1. Hitiið ofninn á 200 gráður. 
  2. Hitið olíu á pönnu á meðalhita. Skrælið kartöflurnar, skerið í 1 cm teninga og steikið á pönnunni. Bætið því næst smátt söxuðum vorlauk á pönnuna. Skerið brokkolí stilkinn í bita og bætið út á pönnuna ásamt paprikunni. 
  3. Kryddið með sjávarsalti og svörtum pipar ásamt papriku kryddinu. Eldið á pönnunni í 15 mínútur eða þar til gyllt á lit og hrærið í af og til. Skerið brokkolíið í hæfilega stóra bita og bætið út á pönnuna síðustu fimm mínúturnar. 
  4. Brjótið átta stór egg í skál og þeytið saman. Rífið cheddar ostinn út í og kryddið með salti og pipar. Blandið vel saman. Saxið gróflega helminginn af spínatinu og klettasalatinu og hrærið út á pönnuna. Hellið því næst eggjablöndunni yfir. 
  5. Rífið cheddar ost yfir og eldið í tvær mínútur. Setjið því næst pönnuna inn í ofn og bakið í 10 mínútur, þar til gullið að lit og blandan stíf í sér. 
  6. Dreifið spínati og klettasalati yfir og berið fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert