Eftirrétturinn sem sigraði hjörtu landsmanna

Hér er á ferðinni uppskrift sem sigraði eftirréttakeppni Rásar 2 fyrir nokkrum áratugum. Höfundur hennar var Sverrir Páll Erlendsson en við erum að tala um forláta After Eight búðing sem hefur verið fastur liður í jólahaldi ansi margra fjölskyldna hér á landi allt frá því hann sigraði keppnina góður.

Myntudraumur

  • 1 dós (400 g) rjómaostur
  • 2 egg
  • 8-10 msk. flórsykur
  • 1-2 tsk. vanilludropar
  • 200 g Carletti súkkulaði
  • ½ l rjómi
  • 10-12 plötur After Eight
  • Skraut: After Eight, rjómi og/eða vanilluís

Aðferð:

  1. Rjómaosturinn hrærður vel svo hann verði kekkjalaus.
  2. Eggin rækilega þeytt ásamt flórsykri og vanilludropum, blandað saman við ostinn.
  3. Súkkulaðið brætt og hellt smátt og smátt út í á meðan hrært er. Kælt um stund í ísskáp eða frysti.
  4. 10-12 plötur After Eight kældar í frysti og síðan brytjaðar nokkuð smátt og settar saman við.
  5. Rjóminn stífþeyttur og blandað varlega með skeið/sleif saman við allt hitt.
  6. Sett í skál og kælt vel.
  7. Borið fram í eftirréttaskálum. Til skrauts má stinga einni plötu af After Eight á hornið ofan í. Svolítil sletta af þeyttum rjóma og/eða smákúlur af vanilluís til skrauts og bragðbætis ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert