Rétturinn sem fjölskyldan mun elska!

Óvenjulegur pastaréttur sem gaman er að prófa
Óvenjulegur pastaréttur sem gaman er að prófa Ljósmynd/Linda Ben

„Þessi réttur hljómar kannski óvenjulega en vá þetta er svo gott! Þessi réttur er kannski ekki fyrir þá allra hefðbundnustu en ef þér finnst gaman að prófa þig áfram með mat og langar að prófa eitthvað nýtt þá er þetta eitthvað fyrir þig. Einnig ef þú getur ekki ákveðið þig hvort þig langi í mexíkóskt í matinn eða ítalskt þá er ekkert því til fyrirstöðu að blanda þessum þjóðarréttum saman,“ segir Linda Ben um þennan rétt sem gæti vel orðið næsti hittarinn hér á landi.

„Maður byrjar á því að sjóða pastað eins og vanalega. Svo steikir maður lauk á pönnu, ef þú vilt hafa réttinn kjötmeiri þá bætir þú nautahakki á pönnuna hér. Svo setur maður maísbaunir og rauðar nýrnabaunir. Hellir svo hökkuðum niðursoðnum tómötum út á pönnuna ásamt grófri salsasósu. Svo kryddar maður sósuna til með  góðu taco-kryddi. Síðast blandar maður pastanu og sósunni saman, setur í eldfast mót, stráir rifnum osti ofan á og bakar inn í ofni þar til osturinn er bráðnaður.“

Mexíkóskt tacopasta

  • 250 g litaðar skrúfur (keypti þessar af umbúðalausa barnum í Krónunni)
  • 1 laukur
  • 500 g hakk (ef þið viljið matar- og kjötmeiri rétt)
  • 150 g maísbaunir (ég nota grön balance)
  • 400 g rauðar nýrnabaunir (má sleppa ef þið notið hakk)
  • 400 g hakkaðir niðursoðnir tómtar (grön balance)
  • 300 g gróf (chunky) salsasósa miðlungssterk
  • 1-2 msk taco-kryddblanda
  • 150 g rifinn mozzarella-ostur (ég nota Urtekram)

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið vatn í pott og náið upp suðunni, bætið salti í pottinn ásamt pastanum, sjóðið pastað í u.þ.b. 10 mín eða þar til það er nánast soðið, smá bit í því ennþá.
  3. Skerið laukinn smátt og steikið á pönnu ásamt hakkinu (ef þið notið hakk). Bætið baununum út á pönnuna ásamt niðursoðnu tómötunum og salsasósunni. Kryddið til með taco-kryddinu.
  4. Setjið pastað í eldfastmót og hellið sósunni yfir, blandið saman. Setjið rifinn ost yfir og bakið í u.þ.b. 15 mín eða þar til osturinn er bráðnaður.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert