Lét jarða sig í M&M kistu

Þetta er mögumlega með undarlegri fréttum sem sést hafa en kona nokkur lét jarða sig í sérhannaðri M&M kistu á dögunum.

Nú kunna margir að spyrja sig af hverju í ósköpunum hún valdi bláa M&M kistu en ástæðan er sú að ást hennar á litríka sjúkkulaðinu var alkunna og má segja að súkkulaðið hafi tengt saman ýmsa mikivæga þætti í lífi hennar.

Mary Ester starfaði sem kennari og færðu nemendur henni reglulega M&M og voru allir sammála um að kistan væri einstaklega viðeigandi.

Til að toppa herlegheitinn mættu jarðarfarargestirnir í litríkum M&M bolum auk þess sem kistan innihélt einnig helling af sælgætinu góða.

Með litríkari jarðaförum sem við höfum séð til þessa.
Með litríkari jarðaförum sem við höfum séð til þessa. mbl.is/Itsmeroundtree_TikTok
mbl.is/Itsmeroundtree_TikTok
mbl.is/Itsmeroundtree_TikTok
mbl.is/Itsmeroundtree_Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert