Þetta eru vínin sem hlutu Gyllta glasið 2023

Svona lítur merki Gyllta Glassins út og gildir það fyrir …
Svona lítur merki Gyllta Glassins út og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin. Ljósmynd/Aðsend

Nú er keppninni um Gyllta glasið 2023 nýlokið en hún er haldin er árlega af Vínþjónasamtökum Íslands.

Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.490 til 4.000 krónur og völdu vínbirgjar vínin í þessa keppni.

Í þessum fyrri hluta voru vín frá suður við miðbaug tekin fyrir ásamt Norður-Ameríku og sérstökum rósavínsflokki, en þar var ekkert verðþak og máttu vínin koma hvaðan sem er úr heiminum. Þau þurftu einvörðungu að vera árgangsmerkt.

Dómnefndin var kampakát eftir smakkið.
Dómnefndin var kampakát eftir smakkið. Ljósmynd/Aðsend

Smökkuð blint

„Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu á Grand Hótel 14. maí síðastliðinn og kunnum við í Vínþjónasamtökunum þeim okkar allra bestu þakkir fyrir aðstoðina. Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E. H. Hough, margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna, sem fékk sérstaka aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindsmökkun sem fram fer á Íslandi ár hvert,“ segir Þorleifur Sigurbjörnsson hjá Vínþjónasamtökunum.

Ljósmynd/Aðsend

Fengu Gyllta glasið 2023

5 hvítvín, 10 rauðvín og 4 rósavín hlutu Gyllta glasið 2023. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir verðlaunavínin í eftirfarandi þremur flokkum fyrir árið 2023.

Hvítvín:

  • Vicar's Choice Sauvignon Blanc 2022, 2.899 krónur 
  • Aresti Trisquel Sauginon Blanc Gran Reserva 2022, 3.399 krónur
  • Villa Maria Sauvignon Blanc Private Bin 2021, 3.492 krónur 
  • Villa Maria Chardonnay Gisborne Private Bin 2020, 2.874 krónur
  • Marques Casa Concha Chardonnay 2021, 3.499 krónur

Rósavín:

  • Villa Wolf Pinot Noir Rose 2022, 2.499 krónur
  • Tommasi Rose Le Fornaci 2022, 2.999 krónur
  • Fleurs de Prairie 2022, 2.799 krónur
  • Beronia Rose 2019, 2.874 krónur

Rauðvín:

  • Zuccardi Q Malbec 2019, 3.813 krónur 
  • Vinyes Ocults Malbec 2019, 3.690 krónur 
  • Alamos Malbec 2022, 2.890 krónur 
  • Bellingham Pinotage 2020, 3.090 krónur
  • Saint Clair Pioneer Block 17 Syrah 2018, 3.599 krónur
  • Marques Casa Concha Etiqueta Negra 2019, 3.999 krónur 
  • Trivento Cabernet Sauvignon Reserve 2021, 2.499 krónur
  • Nederburg Cabernet Sauvignon The Winemasters 2021, 2.499 krónur 
  • Montes Cabernet Sauvignon Carmenere Limited Selection 2022, 2.599 krónur
  • Montes Cabernet Sauvignon Reserva 2022, 2.599 krónur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert