Eitís skonsuterta með rækjusalati

Girnileg skonsutertan með rækjusalatinu sem Eva María Hallgrímsdóttir ástríðubakari með …
Girnileg skonsutertan með rækjusalatinu sem Eva María Hallgrímsdóttir ástríðubakari með meiru deildi með fylgjendum sínum. Samsett mynd

Eva María Hallgrímsdóttir ástríðubakari og eigandi Sætra Synda kom öllum á óvörum og töfraði fram dýrindis skonsutertu með tengdapabba sínum sem Instagramara misstu sig yfir. Hér er á ferðinni algjör nostalgía, skonsuterta með rækjusalati sem minnir á eitís tímabilið. Þessa verða allir sem elska rækjubrauðtertu að prófa. Spurning hvort Eva María muni bjóða þessa til sölu á kaffihúsinu sínu Sætar Syndir. Uppskriftinni deildi Eva María á Instagram reikning sínum @evamairasaetar 

 „Uppskriftin kemur frá tengdamömmu Óla en hún bakaði skonsur og seldi í Kaupfélaginu á Hólmavík í kringum árin 1978-1985. Skonsutertan var alltaf með vinsæl með bauna- og hangikjötssalati og má segja að skonsuterturnar hafi verið undanfari brauðtertna,“ segir Eva María.

Skonsutertan er skreytt og toppuð með gúrku, tómötum og rækjum.
Skonsutertan er skreytt og toppuð með gúrku, tómötum og rækjum. Ljósmynd/Aðsend

Skonsuterta a la Óli Bjössi tengdapabbi

Skonsur

  • 3 bollar hveiti
  • 3 egg
  • ½ bolli sykur
  • 3 tsk. ger
  • 1 tsk. natron
  • 50 g smjör brætt
  • ½  tsk. salt
  • Mjólk eftir þörfum
  • Smjör eða ólífuolía fyrir steikingu

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið saman í skál og hrært vel saman, passið að ekki myndist kekkir.
  2. Pönnukökupanna eða stór panna sem passar vel fyrir stórar skonsur hituð og borin á hana ólífuolía eða smjör ef þarf.
  3. Deigið sett á pönnuna með stórri ausu og skonsurnar steiktar á meðalháum hita.
  4. Þegar það fara myndast holur í deigið er skonsunum snúið við með pönnukökuspaða eða steikarspaða. 
  5. Raðið skonsunum á disk eða kökugrind og kælið fyrir samsetningu á skonsutertunni.

Rækjusalat

  • 400 g pillaður rækjur afþíddar rækjur
  • 5 harðsoðin egg
  • 350 ml majónes
  • Aromat krydd eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja majónes í skál og hrærið saman og kryddið til með Aromat kryddinu og smakkið til.
  2. Bætið við rækjum og eggjum sem búið er að skera niður með eggjaskerara.
  3. Hrærið varlega saman og geymið í kæli fyrir samsetningu.

Skraut:

  • Gúrkusneiðar eftir smekk
  • Litlir kokkteiltómatar eftir smekk
  • Rækjur

Aðferð við samsetningu:

  1. Setjið skonsutertuna saman með því að setja fyrst eina skonsu á kringlóttan disk og smyrjið með rækjusalati og aðra kolli af kolli.
  2. Þegar það eru komin fjögur lög dreifið þá rækjusalati yfir efstu hæðina og skreytið með gúrku og tómötum eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert