Vanillu ostakökubitar með súkkulaðieggjum

Hér eru dásamlegir ostakökubitar með súkkulaðieggjum í páskabúning sem allir …
Hér eru dásamlegir ostakökubitar með súkkulaðieggjum í páskabúning sem allir ráða við að gera. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Hér eru á ferðinni einfaldir ostakökubitar sem ekki þarf að baka, hægt að setja hvaða fyllingu sem er í ostakökuna, en hér eru bitarnir fylltir með Cadbury súkkulaðieggjum. Fallegt á veisluborðið eða sem eftirréttur. Hægt er að skreyta ostakökubitana út frá ólíkum tilefnum, með alls kyns súkkulaði, kökuskrauti, bræddu súkkulaði eða karamellu eftir smekk hvers og eins. Uppskriftin kemur úr smiðju Thelmu Þorbergs matgæðings og gerði hún uppskriftina fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Vanillu ostakökubitar með súkkulaðieggjum

Botn

  • 200 g hafrakex
  • 100 g bráðið smjör
  • 1 tsk. kanill

Ostakaka

  1. 300 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
  2. 60 g flórsykur
  3. 2 tsk. vanilludropar
  4. 150 ml rjómi frá Gott í matinn
  5. 200 g Cadbury súkkulaðiegg eða súkkulaðiegg að eigin vali

Toppur

  • 150 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 100 g Cadbury súkkulaðiegg eða súkkulaðiegg að eigin vali
  • Súkkulaðiperlur eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið bollakökuform ofan í muffinsform og setjið til hliðar.
  2. Setjið hafrakex í matvinnsluvél og hakkið þar til kexið er orðið fín malað, bætið kanil saman við.
  3. Bræðið smjör og hellið saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  4. Setjið eina kúfaða matskeið í hvert form fyrir sig og þrýstið þétt niður með t.d. botni á glasi.
  5. Setjið rjómaost, flórsykur og vanilludropa saman í skál og hrærið þar til blandan er orðin slétt og fín
  6. Þeytið rjómann og blandið honum saman við ásamt grófsöxuðum súkkulaðieggjum.
  7. Setjið ostakökuna í hvert form fyrir sig og fyllið þau alveg upp.
  8. Frystið í 2-3 klukkustundir eða kælið í rúmar 5 klukkustundir.
  9. Takið ostakökubitana úr pappírsformunum og raðið þeim á kökudisk, skreytið með þeyttum rjóma, súkkulaðieggjum og súkkulaðiperlum.
  10. Berið fram kalt, beint úr kæli á fallega skreytt páskaborð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert