Með líkama 25 ára konu

Leikkonan Halle Berry er í fanta formi og deilir æfingunum …
Leikkonan Halle Berry er í fanta formi og deilir æfingunum með aðdáendum sínum. AFP

Undanfarna mánuði hefur Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry deilt líkamsræktarráðum með aðdáendum sínum. Berry æfir undir leiðsögn Peter Lee Thomas fimm sinnum í viku en Thomas segir Berry sem er 51 árs vera í frábæru formi. 

„Ég hafði ekki hugmynd um hversu gömul hún var þegar ég kynntist henni. Ég athugaði það aldrei eða hafði áhuga á því og þegar ég komst að því var í algjöru áfalli af því hún er með aga og hreysti á við 25 ára gamla konu,“ sagði þjálfarinn í viðtali við People

Thomas notar blöndu af bardagalist, boxi, jóga og herþjálfun til þess að þjálfa Berry. Ef hún væri ekki leikkona vill Thomas meina að hún væri atvinnumanneskja í íþróttum.

Á dögunum upplýsti Berry hvaða æfingatæki væri í mestu uppáhaldi hjá henni. Það er bolti með þyngd en hennar bolti er fimm kíló. Hann notar hún til dæmis þegar hún gerir hnébeygjur, þá heldur hún boltanum upp að brjóstum á leið niður, heldur svo niðri og réttir hendur og dregur þær inn aftur með boltann nokkrum sinnum og fer svo upp. Einnig notar hún boltann til þess að gera magaæfingar sem hún kallar African Twist. Hún sveiflar líka boltanum rólega í kringum höfuðið og sveiflar svo með krafti upp til hliðanna. Hún notar líka boltann til þess að gera armbeygjur en þá eru fæturnir á boltanum. 

Berry deilir ráðunum á Instagram og hægt er að horfa á allar æfingar sem hún deilir í Fitness-sögunni hennar á Instagram. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál