Womens Health er með nokkrar góðar leiðir til að auka kyngetuna að mati tímaritsins. Hver kannast ekki við að hlakka til þess að eiga rómantíska stund með kærastanum eða eiginmanninum og svo þegar á hólminn er komið þá hellist yfir mann þreyta og syfja og það eina sem mann langar að gera er að kúra og horfa á eina kvikmynd í sjónvarpinu?
Kynhvötin á rætur sínar í frábæru líffæri sem staðsett er ofan við axlirnar. Einmitt í höfðinu. Streita, áhyggjur, of mikil vinna og þreyta eru atriði sem ber að forðast ef maður ætlar að setja aukna orku inn í kynlífið. Eftirfarandi atriði er gott að hafa í huga í þessu samhengi.
Auktu tenginguna þína við makann
Góð andleg tenging við maka er forsenda þess að konur geti verið öruggar að biðja um það sem þær vilja. Komdu þér í innilegt samband við maka þinn og segðu honum hvað þig langar að gera með honum.
Lárpera og æfingar
Auktu við líkamlega æfingu ef þú vilt auka orkuna í kynlífinu og fáðu þér nóg af lárperu. Minnkaðu sykur að sama skapi. Konur sem eru duglegar að borða fituríkt fæði og æfa reglulega hafa meiri kynorku og löngun samkvæmt rannsóknum.
Dekraðu við þig
Streita minnkar kynorkuna. Þess vegna þarftu að slaka á og slappa af til að auka kynorkuna þína. Settu á þig maska, berðu á þig olíu, farðu í bað og hvíldu þig.