Heimabrugg aldrei vinsælla

Jóhanna Kristjánsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, eigendur Systrasamlagsins.
Jóhanna Kristjánsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, eigendur Systrasamlagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kreppa eða ekki? Það breytir því ekki að heimabrugg hefur sjaldan verið vinsælla. Mikil kefírbruggunarbylgja er á Vesturlöndum enda nú vitað og þekkt að afurðir úr kefír eru iðandi af lífi og talað er um að þær séu miklu öflugri en allar meltingarpillur. Nýlega var greint frá því í fréttum að Bretar hefðu ekki undan að framleiða afurðir úr mjólkurkefír og sjaldan hefur sést eins mikið úrval drykkja úr vatnskefír í hillum verslana, það er í erlendum verslunum. Þá ferðast kefírgrjón til bruggunar manna í millum sem aldrei fyrr. Í ljósi alls þessa er gaman að segja frá því að nafnið kefír er dregið af tyrkneska orðinu keif, sem þýðir góð tilfinning,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, eigandi Systrasamlagsins, í nýjum pistli: 

Kákasusgerillinn

Þið kannist sjálfsagt mörg við mjólkurkefír, sem á rætur í Kákasusfjöllunum. Rannsóknir hafa sýnt að mjólkurkefír inniheldur 30 stofna góðgerla en litla systir hans, vatnskefír um það bil helmingi færri. Þó gerir það vatnskefír að einum vinalegasta, frísklegasta og jafnvel bragðbesta meltingardrykk sem hægt er að brugga. Í ljósi umræðunnar um skort á góðgerlum og stöðugum melingarvandamálum allt of margra er ekkert nema skiljanlegt að kefír sé orðinn svo vinsæll.

Vinsældir kefírs stafa ekki síður af því að það er mjög auðvelt að brugga úr honum alls kyns guðdómlega drykki. Mun einfaldara en t.d. úr frænda hans, kombucha, sem þarf meiri tíma og klapp. Úr vatnskefírgrjónum, sem henta vel vaxandi hópi grænkera, er létt verk að brugga heima hjá sér undursamlega gosdrykki sem heilu fjölskyldurnar geta skipt út fyrir aðra drykki með góðri samvisku.

Kefír hefur lengi verið notaður í evrópskum og asískum alþýðulækningum vegna þess hve margvísleg góð áhrif hann hefur á heilsuna. Kefírgrjón eru í raun blanda af bakteríum og sveppum. Með því að koma mjólkurkefírgrjónum í samband við mjólkursykur má búa til léttsýrða mjólk og sprelllifandi jógúrt en með því að tengja vatnskefír (góðum) sykri, ávöxtum og alls kyns hollustu verður útkoman frábærlega spennandi drykkir.

Sem sé mjólkurkefír þrífst á mjólkursykri úr þeirri mjólk sem við þekkjum best, kúamjólk, en líka geita- eða sauðamjólk. Þó hefur sumum snillingum tekist að gera skemmtilegar afurðir úr hrísgrjóna- og kókosmjólk með því að næra mjólkurkefírinn á mjólkursykri inn á milli.

Vatnskefír dafnar hins vegar best á lifandi syrkri, t.d. lífrænum reyrsykri. Kókossykur eða hlynsíróp henta síður vatnskefír, nema þá til að bragðbæta drykkina, ef vill.

Einstakar gjafir kefírs

Það er ærin ástæða til að taka upp samband við góðan kefír. Ef hans er neytt oft, helst daglega, getur hann haft mjög góð áhrif á heilsu okkar. Kefír styrkir ónæmiskerfið enda inniheldur hann gnótt efnasambanda og næringarefna sem efla ónæmiskerfið. Gerlarnir eru fjölbreyttir og margir. En einn þeirra alveg einstakur. Hann nefnist Lactobacillus Kefiri og vinnur gegn mörgum skaðlegum bakteríum og má þar t.d. nefna E. Coli. Þessi góðgerlahópur kemur jafnvægi á ónæmikerfið og er bókstaflega sagður skúra burtu vondum bakteríum. Annað sérstakt við kefírinn eru fjölsykrur sem nefnast kefiran sem rannsóknir hafa sýnt fram á að vinni gegn candida-sveppasýkingum, sem margir eru að kljást við.

Rannsóknir hafa líka tiltekið að bæði mjólkur- og vantskefír geta unnið á magasári, bakflæði, ristilbólgu, niðurgangi, hægðatregðu, sýkingu í meltingarvegi og einnig er talið að hann fyrirbyggi krabbamein í blöðruhálsi og ristli. Heilsudrykkir úr kefír ýta einnig undir heilbrigðan blóðþrýsting, blóðsykursjafnvægi og hafa góð áhrif á geð.

Engu að síður er nokkur munur á mjólkur- og vatnskefír hvað varðar næringu. Líkt og mjólkin geymir mjólkukefír kalk og magnesíum, sink, A-vítamín og B 1, B12 og B7, prótein og kolvetni. Vatnskefír hefur hins vegar lágan sykurstuðul og leysir glúkósa hægt og örugglega út í blóðráðsina. Kosturinn við vatnskefír, sem er auðvelt að hafa vegan, er að búa má til úr honum alls kyns skemmtilega, persónulega og nærandi gosdrykki. Sjálf brugga ég engiferdrykki og sítrónudrykki sem slá öllum gosdrykkjum sem ég þekki við og eru svo sprelllifandi að það er með hreinum ólíkindum. Möguleikarnir í kefírbruggun eru því óendanlega margir og spennandi.

Að því sögðu vil ég nota tækifærið og benda á að þótt kefírbruggun sé einföld er oft kúnst að byrja og koma sér upp rútínu. Því er gott að fá sterka byrjendaleiðsögn. Mörg góð stuðningsmyndbönd eru á netinu en það jafnast ekkert við Námskeið í bruggun vatns- og mjólkurkefír sem haldið verður brátt í Systrasamlaginu, ekki í fyrsta sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál