Staupasteinsstjarnan Kirstie Alley hefur talað opinberlega um baráttu sína við aukakílóin en leikkonan hefur þyngst og grennst til skiptis. Nú er Alley sögð vera komin á nýjan megrunarkúr og grennst töluvert á síðustu tveimur mánuðum.
Samkvæmt Radar Online er Alley búin að snúa hinni hefðbundnu matarrútínu algjörlega á hvolf. Er hún sögð borða kvöldmat í morgunmat og morgunmat á kvöldin. Hún borðar því kjúkling með elduðum gulrótum eða lax með gufusoðnu spergilkáli á morgnana. Á kvöldin eða um klukkan fimm borðar hún svo hafragraut með möndlumjólk og ávexti með.
Þessi nýji megrunarkúr á að hafa gert það að verkum að Alley er búin að missa hátt í átta kíló á ekki nema tveimur mánuðum.
Það kann að vera óþarfi að taka það fram en megrunarkúrar sem þessir, mataræði sem fólk á erfitt með að vera á til lengri tíma, eru oftast bara skammtímalausn sem fólk fær í bakið seinna meir.