„Á nýju ári þykir mér tilvalið að taka einn dag í það minnsta í smá hreinsun. Einföld hreinsun eins og sú sem ég deili með þér í dag frískar upp á líkamann, losar um bólgur og kemur manni rétt af stað inn í nýja árið,“ segir Júlía Magnúsdóttir, heilsumarkþjálfi og eigandi Lifðu til fulls, í sínum nýjasta pistli:
Það er algengur misskilningur að við þurfum að fasta eða drekka eingöngu safa til þess að hreinsa líkamann. Hreinsunardagurinn hér neðar inniheldur bæði safa, jógúrt, hrökkkex, súpu og meira að segja súkkulaðikúlu.
Hreinsun er tími til að borða hreina fæðu og gefa meltingunni hvíld frá reyktum og sykruðum mat sem oft fylgir hátíðarhöldum. Góður svefn og að hlúa að líkamanum er eitthvað sem ég legg frekar áherslu á á hreinsunardegi.
Smá undirbúningur daginn áður en hreinsunardagur er tekinn er ávísun á að dagurinn gengur betur fyrir sig. Gefðu þér klukkustund eða svo til að kaupa inn og undirbúa. Einnig er hægt er að kaupa tilbúna safa eða bústdrykki til dæmis frá Gló til að minnka fyrirhöfn.
Morgunmatur - Grænn og hreinsandi safi
Millimál - Súkkulaðikúlur
Hádegi - Kókosjógúrt með jarðarberjum og banana
Millimál - Hrökkbrauð og hummus
Kvöldmatur - Létt súpa eða linsubaunaréttur
(t.d frá Frískari og orkumeiri námskeiðinu sem byrjaði núna í janúar)
Undirbúningur
Kaupið inn daginn áður, leggið chia-fræ í bleyti fyrir jógúrt, útbúið hrökkbrauð eða/og súkkulaðikúlur til að hafa við hendi, einnig má flýta enn frekar fyrir og útbúa safann og jógúrtina.
Byrjið daginn á grænum safa og borðið næst þegar hungurtilfinningin kallar. Ef svengd er ekki mikil yfir daginn er óþarfi að borða allan matinn hér á matseðlinum. Ykkur er velkomið að skipta uppröðun uppskrifta eftir hentisemi, þetta hér að ofan er bara tillaga en má algjörlega hliðra til.
Vertu svo með í ókeypis 14 daga sykurlausu áskoruninni sem hefst 28. janúar! Ég get lofað því að áskorunin í ár verður sú allra besta hingað til! Uppskriftir, innkaupalistar og hagnýt ráð að sykurleysinu. Skráning er hafin HÉR!
Heilsa og hamingja,
Júlía heilsumarkþjálfi