Hvað kom fyrir Celine Dion?

Celine Dion æfir hjá spænska dansaranum Pepe Munoz en hann …
Celine Dion æfir hjá spænska dansaranum Pepe Munoz en hann mætti með henni á tískusýningu í París á dögunum. AFP

„Hvað kom fyrir Celine Dion?“ er spurning sem fólk hefur spurt sig að eftir að nýjar myndir af söngkonunni birtust í fjölmiðlum. Söngkonunni er hins vegar nokkuð sama hvað fólki finnst um sig. 

Eiginmaður Dion dó fyrir þremur árum og síðan þá hefur söngkonan ekki bara breytt um fatastíl þannig að hönnuðir sækjast eftir því að klæða hana heldur hefur hún líka grennst töluvert. Á tískuvikunni í París í janúar leit hún út fyrir að vera enn grennri en áður og vakti það þó nokkra athygli.

Dion lét fólk nýverið heyra það í viðtali við The Sun og virðist vera nokkuð sama um hvað fólki finnst. „Ég er að þessu fyrir mig. Mig langar að vera sterk, falleg, kvenleg og kynþokkafull,“ sagði Dion. 

„Ef ég kann þessu vel, þá vil ég ekki tala um það. Ekki angra mig. Ekki taka mynd,“ sagði söngkonan. „Ef þú fílar þetta mun ég vera til staðar. Ef ekki, láttu mig vera.“ 

Söngkonan vill lítið ræða hvernig um æfir, en hún æfir með dansaranum sínum, hinum spænska Pepe Munoz. Munoz hefur sést mikið með Dion og vilja sumir meina að þau séu par. Dion segist þó vera einhleyp en hún og Munoz eru bara bestu vinir. 

Celine Dion ásamt Pepe Munoz.
Celine Dion ásamt Pepe Munoz. AFP
Celine Dion.
Celine Dion. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál