Sigurborg Pálína fór niður um tvær kjólastærðir

Sigurborg Pálína Hermannsdóttir ákvað að taka heilsuna föstum tökum.
Sigurborg Pálína Hermannsdóttir ákvað að taka heilsuna föstum tökum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigurborg Pálína Hermannsdóttir flugfreyja hefur sjaldan verið í betra formi en núna. Hún hefur lést um 20 kg og æfir daglega. Með því að setja sig í fyrsta sæti getur hún verið betur til staðar fyrir aðra líka.

Sigurborg er glæsileg í flugfreyjubúningnum sínum og ótrúlegt að hugsa til þess að þessi flotta kona hafi einhvern tímann litið öðruvísi út. Hún hefur á undanförnum árum farið niður um tvær kjólastærðir og er um þessar mundir að fara niður um eina stærð í búningnum sínum.

Enda hefur hún aldrei verið í betra formi.

„Upphafið að því að ég setti fókusinn á heilsuna má rekja til þess að ég lenti í slysi fyrir tæpum tveimur árum. Þá brotnaði ég á fæti. Í kjölfarið mátti ég ekki stíga í fótinn í þrjá mánuði. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að þyngjast á þessu tímabili en upplifði mig mjög vanmáttuga heilsufarslega. Ég hafði í gegnum árin borðað það sem hendi var næst, sett bæði fjölskyldu og vinnu fram fyrir mínar eigin þarfir og var orðin verulega ósátt við heilsu mína og þyngdina að sama skapi.“

Eðalþjálfun skiptir miklu máli

Sigurborg hafði alltaf stundað líkamsrækt með reglulegu millibili en upplifði mjög mikið frelsi í kjölfar þess að skoða allar hliðar er viðkoma því að vera í góðu formi.

„Ég skráði mig í eðalþjálfun hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyfingu. Hún er með tíma á hverjum morgni klukkan 9:30. Tímarnir eru fjölbreyttir þar sem við lyftum, hjólum og iðkum svokallað hotfitness svo eitthvað sé nefnt. Anna er náttúrlega frábær og veitir okkur einstakt aðhald, bæði þegar kemur að þessu líkamlega, en ekki síður andlega hlutanum og því hvað við borðum.“

Sigurborg segir að í gegnum þjálfunina hjá Önnu hafi hún kynnst fjölmörgum einstaklingum sem halda hópinn og séu stór hluti af því að það er spennandi að vakna hvern morgun og fara í ræktina.

„Ég fer í tíma alla daga sem ég er ekki að fljúga. Ég vakna þá hvern morgun, kem drengjunum mínum í skólann og fæ mér síðan kaffibolla og fer síðan af stað að hreyfa mig.“

Var alltaf að hugsa um aðra

Eitt af því sem Sigurborg kann hvað best við er allt það aðhald sem hópnum er sýnt utan tímanna.

„Anna sendir upplýsingar um mataræði. Síðan eru aukaverkefnin hjá henni einnig mjög hvetjandi. Með þessi móti hef ég getað unnið mig í frábært form, af stað sem ég ætlaði svo sannarlega ekki að lenda á.“

Hvernig lýsirðu forminu sem þú varst í á sínum tíma?

„Ég var ekki á góðum stað þyngdarlega. Mér leið kannski ekki illa, en ég vissi að ef ég ætlaði að vera til staðar fyrir börnin mín í lengri tíma þyrfti ég að skoða þessi hluti upp á nýtt. Það er svo auðvelt að setja bara eitthvað ofan í sig þegar maður er alltaf að spá í aðra frekar en sig sjálfan. Ég er á því í dag að til þess að ná árangri í lífinu á þessu sviði verði maður að gera það af algjörlega heilum hug.“

Sigurborg er fjörutíu og sjö ára og hefur losnað við tuttugu kíló frá því hún byrjaði á námskeiðinu.

„Í dag líður mér alveg rosalega vel. Ég er fyrirmynd barna minna bæði í hreyfingu og mataræði. Síðan er ég mjög þakklát fyrir að eiginmaður minn skellti sér bara með mér í þetta átak. Hann er búinn að missa svipað mörg kíló og ég og er í frábæru formi líka.“

Hvað gerðir þú tengt mataræðinu í byrjun?

„Fyrst tók ég út allan sykur og hveiti. Ég vandi mig á að borða hreinna fæði og lagði mikið upp úr því að elda allan mat frá grunni. Meginuppistaðan í matnum var grænmeti. Ég borða í dag nánast eingöngu mat sem mér líður vel af.“

Allt byggist á ákvörðun um betra líf

Sigurborg viðurkennir að það hafi verið áskorun í upphafi að sneiða hjá sykri. Enda sé sykur mjög ávanabindandi og að finna í mörgum matvælum.

„Lykilatriðið í þessu öllu er að taka ákvörðun um breytt og betra líf og fylgja því síðan eftir.

Í dag borða ég aðeins sykur, en ekki í sama mæli og ég gerði áður. Ég er lítið fyrir öfgar, eða boð og bönn. Ég mæli hins vegar með því fyrir alla að prófa að taka út sykur og hveiti til að núllstilla sig og setja þessar vörur síðan bara inn í mataræðið aftur í hófi.“

Var flókið að taka út sykurinn?

„Bæði og. Ég notaði ávaxtasykur þegar mig langaði að fá mér eitthvað sætt, svo sem döðlur og jarðarber. Síðan minnkaði ég sósur til muna og hef haldið mig mikið við að velja frekar olíur á kjötið mitt í dag þótt ég fái mér síðan alveg sparisósur með rjóma og osti stundum.“

Hvað viltu segja við þá sem eru á sama stað og þú varst á?

„Ég hvet alla til að taka fyrsta skrefið sem byggist alltaf á þessari ákvörðun að setja sjálfan sig í fyrsta sætið. Að sjálfsögðu reynir þetta aðeins á og er átak, en þetta er hægt og er í raun mjög einfalt.“

Tekur æfingafötin með sér til útlanda

Móðir Sigurborgar, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, er búsett í Vestmannaeyjum og er ein af fyrirmyndum hennar í lífinu hvað varðar sjálfsrækt og gott form.

„Mamma er 67 ára að aldri og hugsar mjög vel um sig, bæði gagnvart mat og hreyfingu. Hún er dugleg að fara út í göngur, hún fer í ræktina og síðan hringjumst við mjög mikið á til að hvetja hvor aðra áfram. Mamma er þátttakandi í Fjölþættri heilsueflingu 65+, heilsueflingar- og forvarnarverkefni dr. Janusar Guðlaugssonar íþrótta- og heilsufræðings í Vestmannaeyjum. Mér skilst að framfarir einstaklinga á námskeiðinu séu frábærar. Að fólk yfir sextíu og fimm ára sé að seinka öldrun og auka líkamlega hreysti til muna.“

Sigurborg segir að flugfreyjulífið henti lífsstíl sínum vel. Þegar hún fari utan að vinna taki hún vanalega með sér æfingaföt til að æfa í stoppunum. Hún æfir þá á hótelinu eða í góðri líkamsræktarstöð í nágrenni við staðinn sem hún gistir á hverju sinni.

„Ég get mælt með borgum eins og New York í þessu samhengi. Þar vel ég góða staði til að fá mér acai-skál í hádeginu og síðan má alltaf fá góðan mat með nóg af grænmeti og prótíni á kvöldin.“

mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál