5 mikilvægustu orkuvítamínin

Ljósmynd/Unsplash

Ertu stöðugt þreytt/ur? Mætti svefninn vera betri? Er orkan alltaf að detta niður? Þá er spurning um hvort maturinn færi þér næga næringu? Það eru margir að glíma við alls konar þessa dagana. Sumir borða lítið, aðrir mikið, en samt er eins og eitthvað vanti upp á fyrir ansi marga. Það kann að stafa því að þú ert ekki að fá öll þau vítamín sem eru þér lífsnauðsynleg,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, einn af eigendum Systrasamlagsins í sínum nýjata pistli á Smartlandi:

Það er skynsamlegt að byrja á að spyrja hvaðan orkan okkur kemur? Orkan kemur auðvitað að mestu úr því sem við borðum. Orkuframleiðslan í hvatberunum okkar veltur á breidd þeirra næringarefna sem við neytum en líka hæfni líkamans til að taka næringuna upp. Ef orkan er vandamál er mjög líklegt að þig vanti vítamín eða steinefni.Því að þó að við borðum vel og heilsusamlega, kann að vera að við missum af mikilvægum vítamínum sem samt er svo auðvelt að nálgast.   

Samkvæmt vísindalegum rannsóknum fá meira en 2 billjónir mannkyns ekki nægilega næringu. Ásamt góðum mat er mjög líklegt að nokkur vönduð vítamín og bætiefni geti bætt úr því. Upp á síðkastið hefur flest gengið út að styrkja ónæmiskerfið, sem er gott mál, en þegar kemur að orkunni er gott að huga að 5 lífsnauðsynlegum vítamínum og steinefnum til að halda orkunni uppi.

1. B-vítamín eru hin einu og sönnu orkuvítamín B-vítamín eru vatnsleysanleg og styðja ensím líkamans til að breyta fæðu í glúkósa sem líkaminn brennir til að framleiða orku. Í raun eru B-vítamínin (sem vinna best öll saman) hið eina sanna bensín sem líkaminn þarf á að halda. B12 þarf þó að vera undir mestri smásjá hjá mörgum, sérstaklega grænkerum. En hafðu líka B5-vítamínið í huga því skortur á því getur komið fram sem þrálátt slen, blóðsykurskortur, hárlos, þunglyndi, tilhneiging til sýkinga, svima og margt annað.Með því að taka inn góða B-vítamínblöndu er líklegt að orkuleysi, þreyta og slen hverfi á braut.

2. Megnesíum eykur gæði svefns

Það segir sig sjálft, ef við sofum ekki vel verður orkan aldrei upp sitt besta. Magnesíum er sannarlega eitt mest gefandi steinefnið fyrir líkamann. Magnesíum kemur að meira en 300 efnaskiptaferlum, þar með talið orkumyndun, vöðvavirkni, taugakerfi, hefur mikil áhrif á það hvernig við sofum og hvernig við stöndumst álag. Sem betur fer er magnesíum að finna í miklu magni í mat en þó ekki nægjanleguþar sem talið er að 70% mannkyns þjáist af skorti á magnesíum. Almennt þrek – já og orkuleysi er gjarnan tengt skorti á magnsíum. Áttu erfitt með svefn? Þá er gæti gott magnesíum verið málið.Það tengist sannarlega betri orku, samkvæmt vísindalegum rannsóknum.

3. Járn eykur orkuefnaskiptin Járn er lífsnauðlegt líkamanum og og eitt af þessum efnum sem kemur að mikilvægum efnaskiptum og færir súrefni um líkamann.Járnskortur er algengasti næringarskortur í heimi.Konur sem fara á erfiðar blæðingar, ófrískar konur og grænkerar eru í mestri hættu á járnskorti. Barnshafandi konur þurfa nærri tvöfalt meira járn á dag en karlmenn.Járnskortur er tengdur orkuleysi, heilaþoku og grunnri öndun.

4. C-vítamín er ómissandi Það er alltaf ástæða til að tala um C-vítamín sem þykir ekki bara mikilvægt í vesturheimi heldur er ein allra mikilvægasta næringin skv. ayurveda-fræðunum og líka kínversku alþýðulæknisfræðinni. C-vítamín hefur mikil áhrif á ónæmiskerfið en líka orku okkar, þar sem það sem kemur að margvíslegum efnaskiptum líkamans, þar með talið orkuefnaskiptum. Nánar tiltekið þarf C-vítamín til ótal margra hluta, svo sem kollagenframleiðslu, karnitín, innkirtlastarfsemi og myndun taugaboðefna. Skortur getur valdið skyrbjúg, minni teygjanleika í húð, marblettum, lítilli vöðvaspennu, bólgum í tannholdi og því að sár séu sein að gróa.Þá ýtir C-vítamín undir upptöku járns sem hefur áhrif á orkuframleiðslu. C-vítamín er algerlega ómissandi.

5. Joð fyrir skjaldkirtilinn Joð er enn eitt næringarefnið sem er lífsnauðsynlegt orkubúskapnum og ekki síst skjaldkirtlinum. Skortur á joði leiðir gjarnan til þungra efnaskipta og jafnvel algers þrots.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál