Öflug hugaræfing til að brjótast úr gömlu fari

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi rekur vefinn Lifðu til fulls.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi rekur vefinn Lifðu til fulls.

Síðustu helgi átti ég alveg æðislegan dag með konum sem eru hjá mér í Nýtt líf og Ný þú eðalþjálfun, í töfrandi umhverfi í Hveragerði,“ segir Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi í sínum nýjasta pistli á Smartlandi:

Við byrjuðum daginn á því að konurnar áttuðu sig á gömlum sögum um líkama sinn sem voru að valda neikvæðum hugsunum og halda þeim í sama fari. Málið er að við eigum öll þá tilhneigingu að hugsa oftar neikvætt en jákvætt.

Þegar við tökum eftir neikvæðum hugsunum höfum við val um það að trúa þeim eða varpa þeim svolítið í kastljóstið og spyrja okkur hvort þær séu raunverulega sannar eða ekki, og biðja þær síðan vinsamlegast um að hverfa á brott.

Óspurðar hugsanir leiða til þjáningar í lífinu segir Byron Katie, ein af mínum kennurum.

Eitt af því sem ég deildi með dömunum um helgina var einmitt einföld 4 mín. æfing til að brjótast úr gömlum hugsunum.

Þessi einfalda og öfluga æfing byggist á 4 spurningum og tækifærin til að nota hana eru óendanleg. Dæmi um hugsanir sem hægt er að vinna úr væri; „ohh ég er svo feit...“ eða „ég er pirruð út í manninn minn“, „ég er ekki að standa mig nógu vel“, „ég kem mér ekki af stað til að byrja“, „ég er ómöguleg, mér tekst þetta aldrei...“

Æfingin "the work" eftir Byron Katie

1. Er það satt? (já eða nei svar)

2. Getur þú algjörlega vitað að þessi hugsun er sönn? (já eða nei svar)

3. Hvað gerist og hvernig bregst þú við þegar þú trúir þessari hugsun?

4. Hver eða hvað værir þú án þessarar hugsunar?

Svo snýrð þú dæmi þínu við með fjórum "turnarounds" eins og Byron Katie kallar það þar sem þú tekur upprunalega hugsun þína, snýrð henni við og spyrð þig hvort það sé enn þá  satt. Hér má sjá fulla æfingu á ensku ef þú skyldir vilja prenta æfinguna út. Til að fá dýpri skilning mæli ég svo eindregið með því að kynna þér vefsíðu Byron Katie og Youtube þar sem má finna fjölda myndbanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál