Fólk hefur lent inn á geðdeild vegna kórónuveirunnar

Óttar Guðmundsson geðlæknir er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpsþættinum hans.
Óttar Guðmundsson geðlæknir er gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpsþættinum hans. mbl.is/Kristinn

Óttar Guðmundsson geðlæknir er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Óttar hefur í áraraðir aðstoðað fólk með geðsjúkdóma og fíknivanda og eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá ævisögu Megasar yfir í bókina „Hetjur og Hugarvíl,“ þar sem hann fjallar um mögulega geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna í Íslendingasögunum. Óttar og Sölvi ræða í viðtalinu meðal annars um kórónuveirutímabilið, sem Óttar segir hafa einkennst af hamfarablæti fjölmiðla. 

Sölvi Tryggvason er kominn með nýtt hlaðvarp, Podkast með Sölva …
Sölvi Tryggvason er kominn með nýtt hlaðvarp, Podkast með Sölva Tryggva.

„Fjölmiðlar hafa náttúulega gengið alveg af göflunum í þessari Covid umræðu. Þetta er orðin allt of mikil umræða og Covid eru fyrstu fjórar fréttirnar á RÚV alltaf. Það er alltaf verið að tala um nýjar tölur í Covid svona svolítið eins og það sé verið að segja hálfleikstölur í fótboltaleik, hvað hafa margir smitast og hvað eru margir í einangrun og svo framvegis og fólk bíður eftir nýjustu tölum bara eins og á kosningakvöldi eftir nýjustu tölum úr kraganum. Ógninni er viðhaldið og það er alltaf verið að minna fólk á að þetta séu víðsjárverðir tímar og fordæmalausir tímar og þetta finn ég hjá mínum sjúklingum að þetta hefur áhrif, þessi stöðuga ógn. Það er alltaf verið að minna á þessa ógn.“

Óttar segir þetta hafa ýtt gríðarlega undir kvíða, þunglyndi og aðra geðræna kvilla. 

„Það segir sig náttúrulega sjálft að þeir sem eru kvíðnir fyrir að þeir verða mun kvíðnari þegar alltaf er verið að segja sögur af einhverri drepsótt sem er í loftinu og maður á að forðast þetta og forðast hitt. Þeir sem eru með áráttu- og þráhyggjuhegðun, þeir verða enn verri og alls konar tegundir af þunglyndi versnar. Þetta eru þannig tímar og þessi stöðuga umræða hefur að sjálfsögðu slæm áhrif á geðheilsu fólks. Það er til fólk sem hefur farið í Covid-geðrof og misst algjörlega tökin á raunveruleikanum í þessari Covid umræðu og farið að sjá ofsjónir og þvíumlíkt og sér fyrir sér að helvíti opnist undir fótum þeirra og kemur inn á geðdeild.”

Óttar segir að hann finni það í starfi sínu að þetta tímabil sé að ýta undir allar tegundir geðsjúkdóma.

„Það hefur orðið aukning í komum til sálfræðinga, geðlækna og inn á bráðamóttöku geðdeildar og margir sem voru með undirliggjandi geðsjúkdóm hafa upplifað þessa ógn mjög sterkt og þetta er eitthvað sem hefur gert þeirra sjúkdóm verri,” segir Óttar

„Eftir 10 ár munum við velta því fyrir okkur hvort þessi viðbrögð þar sem efnahagslífið er meira og minna sett í algjöra bremsu og öllum valkvæðum aðgerðum og forvarnarvinnu frestað á spítölum af því hann er svo upptekinn við að hugsa um Covid hafi verið réttlætanlegt. Við vitum það auðvitað ekki í dag, en við munum á einhverjum punkti þurfa að velta því fyrir okkur hvort sjúkdómurinn hafi verið nógu hættulegur til þess að við settum allt á hliðina fyrir hann.”

Í viðtalinu ræða Sölvi og Óttar um ævisögu Megasar, geðsjúkdóma í Íslendingasögunum, stóra bróðurs-samfélagið og margt margt fleira

Hér er hægt að hlusta á þáttinn í Spotify: 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál