Tónlistarkonan Cheryl hefur prófað nokkra slæma megrunarkúra. Sá allra versti var Atkins-kúrinn sem hún prófaði þegar hún var unglingur. Hún fékk hugmyndina eftir að leikkonan Jennifer Aniston mælti með kúrnum.
Cheryl sagði í viðtali við Marie Claire að hún ætlaði ekki að prófa neina tískukúra og heilsuæði aftur.
Allra versti kúrinn hefði verið Atkins-kúrinn en það var leikkonan Jennifer Aniston sem mælti með honum. Cheryl var bara unglingur þegar hún prófaði hann. Hún borðaði aðallega fitu og prótín á kúrnum. Ólíkt ketó borðaði hún ekki grænmeti.
Fólk lítur upp til stjarna en áttar sig ekki endilega á að það sama virkar ekki fyrir alla. Það þýðir samt ekki að Cheryl elski ekki þessar stjörnur. „Ég horfi á Jennifer Aniston og segi takk, en nei takk. Takk fyrir ráðleggingarnar en þær eru ekki fyrir mig. Ég elska hana samt.“