Margrét Elín sigraði í uppskriftarkeppninni

Margrét Elín sigraði í heilsuuppskriftarkeppni Smartlands og Nettó.
Margrét Elín sigraði í heilsuuppskriftarkeppni Smartlands og Nettó. mbl.is/Unnur Karen

Smartland Mörtu Maríu og Nettó stóðu fyrir heilsuuppskriftarsamkeppni í tilefni af Heilsudögum sem haldnir voru á dögunum. Fjöldinn allur af uppskriftum barst í keppnina og voru þær hver annarri girnilegri. Það er augljóst að fólkið í landinu dýrkar góðan heilsumat. 

Margrét Elín sigraði í keppninni og fékk 50.000 króna inneign í Samkaup/Nettó í verðlaun. Uppskriftin sem Margrét Elín sendi inn kallar hún Rokkandi rækjur! 

Rokkandi rækjur fyrir einn

Um það bil 150 g frosin blómkálsgrjón
Um það bil 120-150 g risarækjur
50 g edamame-baunir
2 kúfaðar tsk. af rauðu pestói
Klípa af smjöri
Hvítlaukssalt

Aðferð

Byrja á að affrysta rækjurnar.

Setja blómkálsgrjónin á heita pönnu með smá af bragðlausri olíu og steikja í 2-3 mínútur. Bæta edamame-baununum út í ásamt rækjunum, pestóinu og klípu af smjöri. Hræra allt vel saman krydda með hvítlaukssalti og steikja þar til rækjur verða bleikar.

Voila komið!

Það er einnig mjög ljúffengt að setja smá slettu af rjóma út í undir lokin, þá kemur nettur risotto-fílingur af réttinum. Eða kreista smá sítrónu yfir. Hvorugt nauðsynlegt en gefur skemmtilegt twist.

Anna Margrét bjó til heilsusamlega skál sem er mjög ljúffeng.
Anna Margrét bjó til heilsusamlega skál sem er mjög ljúffeng. mbl.is/Unnur Karen

Í öðru sæti varð Anna Margrét Björnsson og fékk hún 30.000 króna inneign í Samkaup/Nettó. Hún sendi inn uppskrift af kóresku Bipimbap sem er fallegur réttur í skál.   

Innihald

Egg

gulrætur skornar í strimla

sveppir skornir í strimla

bok choi eða brokkolini

brún hrísgrjón eða núðlur

Aðferð

Steikið grænmetið í smá sojasósu og sesamolíu. Raðið grænmetinu og núðlum í sitt á hvað í hring í skálina. 

Steikið egg og setjið i miðjuna (einnig má bæta við nautastrimlum, tofu eða kjúklingi). Berið fram með gochujang-sósu eða sirarcha-sósu og smá niðursneiddum vorlauk.  

Bananapönnukökur Arndísar urðu í þriðja sæti.
Bananapönnukökur Arndísar urðu í þriðja sæti.

Í þriðja sæti hafnaði Arndís sem sendi inn uppskrift af girnilegum bananapönnukökum!

Uppskrift

2 dl haframjöl 

1 dl haframjólk/möndlumjólk

2 mjög vel þroskaðir bananar 

2-3 egg

1/2-1 msk. kókosolía

3/4 -1 tsk. sjávarsalt

1-2 tsk kanill (dregur fram sætuna í banönunum) 

1/2 tsk. vanilludropar

Aðferð

Kókosolían brædd á pönnu. Á meðan hún bráðnar er öllum hráefnum nema kókosolíunni og saltinu (ef notað) skellt í blandara og blandað vel saman. Ef saltið er notað er heitri kókosolíunni helt ofan á saltið til að bræða það í blandaranum og öllu síðan blandað saman. Steikt á meðalhita í lummustærð á góðri pönnu líkt og venjulegar pönnukökur. 

Gott að bera fram með hunangi og til dæmis döðlusírópi, bláberjum, jarðarberjum og/eða ýmiskonar hnetukurli. 

Anna Margrét Björnsson varð í öðru sæti og Margrét Elín …
Anna Margrét Björnsson varð í öðru sæti og Margrét Elín í því fyrsta. mbl.is/Unnur Karen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál