Fagnar edrúafmæli með heiðarlegri mynd

Jessica Simpson hefur ekki bragðað áfengi í fjögur ár.
Jessica Simpson hefur ekki bragðað áfengi í fjögur ár. PHIL McCARTEN

Leikkonan Jessica Simpson fagnaði því að fjögur ár eru liðin frá því að hún bragðaði síðast áfengi. Í tilefni af deginum birti hún mynd af sér daginn sem hún ákvað að lifa lífi án áfengis. 

„Ég þekki ekki þessa manneskju, snemma morguns 1. nóvember 2017. Ég átti eftir að uppgötva svo margt um mig. Ég vissi á þessu andartaki að ég myndi leyfa sjálfri mér að taka aftur ljósið, og vinna mínar innri baráttur og fara hugrökk út í þennan heim,“ skrifaði Simpson við myndina. 

Hún bætti við að hún hafi þurft að hætta að drekka áfengi því hugur hennar og hjarta voru ekki heil. Hún hafi viljað finna fyrir sársaukanum svo hún gæti komist í gegnum hann. 

„Áfengið var ekki vandamálið. Ég var það. Ég elskaði sjálfa mig ekki. Ég kom ekki fram við sjálfa mig af virðingu. Í dag geri ég það. Ég hef sætt mig við óttann og hef samþykkt hluta lífs míns sem eru bara sorglegir,“ skrifaði Simpson. 

Simpson hefur áður tjáð sig um vegferð sína að áfengislausu lífi í sjálfsævisögunni Open Book. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál