Drekkur bara eitt glas á viku

Gwyneth Paltrow drekkur minna en áður.
Gwyneth Paltrow drekkur minna en áður. AFP/FREDERIC J. BROWN

Hollywoodstjarnan Gwyneth Paltrow er búin að minnka áfengisdrykkju sína mjög mikið. Hún segist nú bara drekka eitt glas á viku. Í kórónuveirufaraldrinum drakk hún mun meira.

„Ég fæ mér einn drykk á viku, viskí eða eitt lítið rauðvínsglas. Leiðinlegt,“ skrifaði Paltrow sem kann sér greinilega hóf. Þessu greindi stjarnan frá í fréttabréfi hjá lífstílsfyrirstæki sínu Goop að því fram kemur á vef People. 

Eftir mikla víndrykkju í heimsfaraldrinum hætti Paltrow nánast að drekka vín en núna er hún greinilega byrjuð að leyfa sér aðeins en þó ekki of mikið. Þegar hún hætti að drekka byrjaði henni að líða betur. 

Paltrow er kona sem kann að meta gott viskí. Hún elskar til dæmis að fá sér viskí fyrir svefninn. Ég elska viskí og ég geri magnaðan drykk sem ég kalla Buster Paltrow, sem ég nefndi eft­ir langafa mín­um sem elskaði viskí sour-drykki,“ sagði Paltrow um óhóflega víndrykkju sína í fyrra. 

Gwyneth Paltrow.
Gwyneth Paltrow. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál