Ragnhildur Steinunn selur íbúðina

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.

Sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur sett íbúð sína og unnusta síns, Hauks Inga Guðnasonar, við Marargötu í Reykjavík á sölu. Íbúðin er í reisulegu húsi sem byggt var 1931 og er íbúðin 79 fm.

Íbúðin er sérstaklega vönduð og falleg en á gólfunum er parket með fiskibeinamunstri og sjarmerandi gamlir gluggar.

Parið hefur nú þegar fest kaup á einbýli í Vesturbænum svo það fari betur um ört stækkandi fjölskyldu en Ragnhildur Steinunn og Haukur Ingi eiga von á sínu öðru barni í haust. Fyrir eiga þau dótturina Eldeyju sem er tveggja ára.

Heimili Ragnhildar Steinunnar.
Heimili Ragnhildar Steinunnar.
Björt og falleg borðstofa.
Björt og falleg borðstofa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál