Nicole Kidman hefur sett lítið og krúttlegt hús sitt á sölu en húsið stendur rétt fyrir utan Nashville í Tennessee. Húsið þykir reyndar bara nokkuð rúmgott fyrir flesta en Kidman á þó önnur hús sem eru stærri.
Reyndar þurfa Kidman og eiginmaður hennar Keith Urban ekki að taka hús á leigu til þess að dvelja í Nashville enda eiga þau annað hús þar, sem er meira en helmingi stærra en þetta.
Húsið er nokkuð látlaust bæði að utan sem og innan en Kidman fjárfesti í húsinu árið 2007 samkvæmt Variety. Nú vill hún fá um 360 milljónir íslenskra króna fyrir húsið. Sá sem kaupir húsið þarf ekki að kvíða því að þurfa keyra langar leiðir í ræktina enda pláss fyrir nokkuð fína líkamsrækt í húsinu eins og sést.